Úrval - 01.07.1971, Page 47
HOLSKEFLAN SKELFILEGA
45
Yahya forseti gerði sér grein fyr-
ir því, að land hans réði ekki við
þessi vandamál hjálparlaust. Því
sendi hann tafarlaust hjálparbeiðni
til Sameinuðu þjóðanna. Og um-
heimurinn brást vel við. Á fimmta
degi eftir að holskeflan hryllilega
hafði skollið yfir, lentu tvær fjög-
urra hreyfla þotur frá Sviss og Vest-
ur-Þýzkalandi í Austur-Pakistan.
Þær voru hlaðnar matvælum og
öðrum birgðum. Bandaríkin sendu
Boeing 707-þotu, hlaðna teppum og
tjöldum, og flutningaskip hlaðið
hveiti og matarolíu. Hjálp barst frá
yfir 50 þjóðum, og taldist Pakistan-
stjórn svo til, að andvirði erlendrar
aðstoðar næmi orðið um 52 milljón-
um dollara þann 28. nóvember.
Þegar komið var fram að jólum,
áleit pakistanska ríkisstjórnin, að
alverstu neyðinni væri aflétt, þann-
ig að fólk fengi haldið lífi. Flestir
fengu nú vikulegan matarskammt,
8 pund fyrir fullorðna og 4 pund
fyrir börn. Hann var ekki mikill,
og flestir voru alltaf dálítið svang-
ir. En fólkið á óshólmasvæðunum
er harðgert, iðjusamt og seigt. Það
gefst ekki svo auðveldlega upp. Á
leðjueyjunni Char Lord Hardinge
sagði helzti leiðtoginn í þorpi einu:
„Við erum vön erfiðleikum og skorti,
og það þarf ekki mikið til þess að
veita okkur nýja von. En þá von
verður að næra. Við munum berjast
fyrir lífinu, en við þurfum nauð-
synleg tæki til þess að berjast með“.
ENGINN UPPGJAFARANDI
ÞRÁTT FYRIR ALLT
Það mun taka langan tíma, þar
til fólk þetta, samtals hálf þriðja
Á þessu korti sést, hvar flóöbylgjan
ægilega skall yfir.
milljón, hefur fengið nauðsynleg
tæki til nýrrar lífsbarátu. Hin mikla
flóðalda eyðilagði 235.000 heimili
að fullu og skemmdi 100.000 önnur
þar að auki. Hún sökkti 9000 fiski-
bátum eða eyðilagði þá. Hún rændi
bændurna fjölmörgum plógum,
350.000 uxum, sem notaðir voru til
þess að draga plógana, o'g 150.000
kúm. Hún eyðilagði 80% af hrís-
grjónauppskerunni. Sjávarsaltið
gerði jarðveginn ófrjóan. Nú verður
fólkið að bíða mánuðum saman eftir
því, að staðvindaregnið hreinsi jarð-
veginn að nýju, svo að fræ geti
lifað og dafnað í honum.
Á meðan hefur ríkisstjórnin út-
býtt nokkru fé, einnig uxum og bát-
um, en þó ekki í stórum stíl. Bún-
aðarráðunautar frá Bandarísku al-
þjóðlegu þróunarnefndinni gerðu
prófanir á jarðveginum, komust að
því, að á sumum svæðum, þar sem
var ekki mikið saltmagn í jarðveg-