Úrval - 01.07.1971, Blaðsíða 56
54
þeirra er sú, að þeir hafa nýlega
öðlazt þýðingarmikla nýja vitneskju
um þennan hættulega sjúkdóm, sem
oft er vanrækt að leita lækninga
við. Að minnsta kosti 20 milljón
Bandaríkjamenn eru haldnir of há-
um blóðþrýstingi, og hann verður
að bana þrem fjórðu úr milljón
manna árlega eða á þátt í dauða
þeirra. Dr. Joseph A. Wilber við
Heilbrigðismáladeild Georgiufylkis
segir, að samt fái aðeins um 15% af
þessum 20 milljón fórnardýrum þá
meðhöndlun, sem þeir þarfnast.
Bill Peters er einn hinna heppnu.
Ráðstafanir voru gerðar til þess að
halda blóðþrýstingi hans í skefjun,
þótt hann væri aðeins lítið fyrir of-
an eðlilegt mark, og því hefur dreg-
ið geysilega úr líkunum fyrir því, að
hann látist af hjartaáfalli eða öðr-
um hjartasjúkdómum.
Flest fólk, sem hefur of háan
blóðþrýsting, hefur ekki hugmynd
um það, því að sjúkdómur þessi er
lævís. Oftast fylgja honum engin
sjúkdómseinkenni. Hjartafélag Mic-
higanfylkis skýrir frá því, að í ný-
legri blóðþrýstingsrannsókn í stórri
verksmiðju hafi 919 starfsmenn
reynzt hafa of háan blóðþrýsting, og
að 78% þeirra hafi ekki haft hug-
mynd um það. Þau sjúkdómsein-
kenni, sem honum geta fylgt, höf-
uðverkir, svimi, þreyta eða magn-
leysi. En jafnvel þegar þau gera
vart við sig, gera margir sér ekki
grein fyrir því, að þau geti orsakazt
af of háum blóðþrýstingi, af því að
þáu eru einnig sjúkdómseinkenni
annarra sjúkdóma og kvilla. Þar að
auki hefur ekki verið hægt að greina
orsök of hás blóðþrýstings hjá 85—
ÚRVAL
90% sjúkdómsgreindra blóðþrýst-
ingssjúklinga.
Blóðþrýstingur er einfaldlega afl
blóðþrýstingsins á slagæðaveggina.
í hvert skipti sem hjartað slær,
eykst þessi þrýstingur. í hvert skipti
sem hjartað hvílir sig á milli slaga,
minnkar þrýstingurinn. Þegar lækn-
ir mælir þrýstinginn, gerir hann
tvennar mælingar og skrifar tölurn_
ar eins og um brot væri að ræða,
til dæmis 130/80. Fyrri og hærri
talan, 130 millimetrar (þrýstingur
mercurysúlu, sem er 130 millimetr-
ar eða 5.1 þumlungur á hæð), er
hinn „systoliski" þrýstingur, þ.e.
hámarksþrýstingur í slagæðunum,
meðan hjartað dælir (slagþrýsting-
ur). Hin talan táknar „diastoliskan"
þrýsting, b.e. þrýsting blóðsins á
slagæðaveggina á milli hjartaslag-
anna (millislagaþrýstingur).
Eðlilegur blóðþrýstingur getur
verið mjög breytilegur, minni í
svefni, hærri við líkamlega áreynslu
eða tilfinningalegt uppnám, jafnvel
í heimsókn til læknisins. Það er
þess vegna sem margir læknar mæla
oft blóðþrýsting sjúklings nokkrum
sinnum, meðan á sömu heimsókn
stendur. Og eðlilegur blóðþrýsting-
ur er mjög breytilegur, 100—140
fyrir „syst,oliskan“ þrýsting (slag-
þrýsting) og' 60—90 fyrir „diasto-
liskan" þrýsting (millislagaþrýst-
ing). Þótt þrýstingurinn reynist ein-
staka sinnum vera hærir en 140/90,
þarf slikt alls ekki að vera óeðli-
legt. Það er aðeins um of háan blóð-
þrýsting að ræða, ef þrýstingurinn
er stöðugt hærri en eðlilegt má telj-
ast.
Of hár blóðþrýstingur veldur