Úrval - 01.07.1971, Qupperneq 59
IiÁR BLÓÐÞRÝSTINGUR ...
57
þrýsting sinn með því einu að
minnka neyzlu saltrar fæðu.
Dr. Irvine H. Page við Cleveland-
sjúkrahúsið tryggir góðan árangur
læknismeðhöndlunar á þann hátt, að
hann lætur sjúklinga sína mæla eig-
in blóðþrýsting á heimilum sínum.
Það er mjög auðvelt að !æra slíkt,
og nú mæla sífellt fleiri læknar
með því. Sjúklingarnir skrá svo hjá
sér blóðþrýstinginn, venjulega þeg-
ar þeir fara á fætur og í rúmið. Og
svo afhenda þeir lækni sínum
skýrslu þessa mánaðarlega. Page
læknir mælir á þessa leið, hvað
þetta atriði snertir: „í fyrstu hafði
ég áhyggjur af því, að betta mundi
gera suma sjúklingana taugaveikl-
aða, en slíkt hefur reynzt vera geysi-
lega sjaldgæft“.
Það er augljóst, að of hár blóð-
þrýstingur er eitt af hinum meiri
háttar heilsufarslegu vandamálum.
En á þessu sviði eru líka geysi-
legir möguleikar til ýmissa ráðstaf-
ana til þess að hefta sjúkdóminn
eða lækna eða koma jafnvel í veg
fyrir hann. Til allrar hamíngju höf-
um við fundið mörg ráð til hjálpar.
Og nú hefur það sannazt á óyggj-
andi hátt, að sé blóðþrýstingi hald-
ið innan tiltölulega eðlilegra tak-
marka, þá stórminnka líkurnar á
heilablóðfalli, hjartaáfalli og hjarta-
bilun“.
Hvað merkja allar þessar niður-
stöður, hvað sjálfa(n) þig snertir?
Einfaldlega þetta: .... Hafi læknir
þinn sagt þér, að þú þjáist af of
háum blóðþrýstingi á lágu stigi og
hafir þú ekkert gert í málinu, biddu
hann þá að rannsaka þig á ný og
fylgdu síðan ráðum þeim, sem hann
gefur þér til þess að halda blóð-
þrýstingnum niðri.
. Hafi það aldrei komið fram,
að þú hafir of háan blóðþrýsting,
skaltu minnast þes, að enginn er
„ónæmur" fyrir honum og að blóð-
þrýstingur getur hækkað hvenær
sem er án nokkurra sjúkdómsein-
kenna, sem geti varað þig við. Vegna
hinna nýju upplýsinga, sem aflazt
hafa með ýmsum rannsóknum, er
nú enn þýðingarmeira en áður að
fara í árlega rannsókn. Það er til-
tölulega fyrirhafnarlítið fyrir þig
að ganga úr skugga um, hvort blóð-
þrýstingur þinn er eðlilegur, og sé
svo ekki, að fá hann þá lækkaðan
og halda honum niðri. Þannig
minnkarðu geysilega líkurnar á því,
að þú verðir örkumla eða látir líf-
ið af völdum heilablóðfalls eða
hjartasjúkdóma.
Því er eins farið með samninga og rósir og
ast bara, á meðan þeir endast.
ungar stúlkur. Þeir end-
Charles de Gaulle.
Ritskoðun er dæmi um vantraust þjóðfélagsins á sjálfu sér.
Potter Stewart dómari.