Úrval - 01.07.1971, Qupperneq 65
ÉG HELD ÉG REYNI AÐ NÁ í HVÍTA HÚSIÐ
63
helmingslíkur á því, að hún yrði
fær um að ganga á nýjan leik. Og
möguleikarnir á því, að hún héldi
ófædda barninu, voru jafnvel enn
minni.
Skurðaðgerðin tók fjórar klukku-
stundir. Fyrst framkvæmdi Luess-
enhop aðgerð til þess að létta á
þrýstingi á mænustrenginn og lag-
færa hryggjarliðina og rétta þann-
ig hrygginn. Síðan græddi Nirschl
beinflísar úr mjaðmarbeini hennar
utan um mænustrenginn og setti
þar í „styrktarvír" úr ryðfríu stáli
til styrktar hryggnum.
Hjúkrunarkonur óku henni svo
til sjúkrastofunnar. Skyndilega tók
henni að hraka. Luessenhop opnaði
skurðinn aftur. Blóðtappi þrýsti nú
á mænustrenginn. Hann gerði aðra
skurðaðgerð, og í þetta skipti fór
allt vel.
Þrátt fyrir meiðsli sín þarfnaðist
Brian ekki skurðáðgerðar. Þrem
vikum eftir slysið fékk Brian að
fara heim af sjúkrahúsinu. Donna
steig aftur í fæturna þ. 12. júlí. Með
hjálp spelkna staulaðist hún eftir
gangi sjúkrahússins. Og viku síðar
fór hún heim. Hún var hölt, en hún
hafði ekki misst fóstrið. Það kvöld
fengu þau David og Donna sér
kampavínsglas til þess að halda upp
á þennan merkilega áfanga.
Von var á barninu í síðustu viku
októbermánaðar. Þegar sá tími kom,
án þess að til fæðingar kæmi, tók
Urey að óttast, að eitthvað væri að.
Loks fór Donna að finna til fæð-
ingarhríðanna þ. 6. nóvember. Og
klukkan 11.30 að kvöldi ók Urey
henni til sjúkrahúss Georgetown-
háskólans.
Meðan hann beið eftir fæðing-
unni, endurlifði hann í huga sér
kveljandi stundir hinnar endalausu
biðar í Petersburg fyrir fimm mán-
uðum. Honum varð hugsað til Gary
Arbaugh. sem hafði endursent ávís-
unina, sem hann hafði sent honum,
og sagt, að það hefði bara verið
„siðferðileg skylda hans að hjálpa“.
Honum varð hugsað til Huges hers-
höfðingja og allra hinna, sem höfðu
gert þeim Donnu það mögulegt að
upplifa þennan dag.
Urey hafði ekki ætlað sér að vera
inni hjá konu sinni, meðan hún
fæddi barnið. En nú fann hann það
skyndilega, að hann varð að vera þar
viðstaddur. Og klæddur læknaslopp
og með sóttvarnargrímu fyrir vit-
unum hélt hann í hönd Donnu, með-
an læknarnir tóku á móti barninu.
„Það er drengur, tilkynnti Ge-
orge E. Stevens fæðingarlæknir. „Og
hann virðist vera við prýðilegustu
heilsu."
Það er góður vani að lesa á milli línanna. Það þreytir augun minna.
Saclia Guitry.
Bezta aðferðin til þess, að fá aðra ökumenn til þess að sýna manni
fyllstu tillitssemi, er að aka lögreglúbíl.
Hál Chadwick.