Úrval - 01.07.1971, Síða 71
HINN ÓGLEYMANLEGI STANLEY STEIN
69
að á efni bóka og tímarita, sem tek-
ið hafði verið upp á plötur, en þær
voru látnar í té af Þingbókasafninu
og Amerísku blindrastofnuninni.
„Þetta varð líklega til þess að varna
því, að ég yrði vitskertur," sagði
hann, „vegna þess að ég gat ekki
hugsað mér að lifa lífinu bókalaus.“
Hann tók nú til að berjast af meiri
krafti fyrir málefnum sjúklinganna.
ENGIN SJÁLFSMEÐAUMKUN
Smám saman bar hin þrjózkufulla
og oft áleitna barátta hans fyrir
réttum skilningi manna á Hansens-
veikinni, árangur, er árin liðu. Sett
var upp pósthús í sjúkrahúsinu.
Sjúklingarnir fengu líka nýjan sam-
komusal og sjúkradeild, þeir fengu
einnig síma og full afnot af þeim.
Gaddavírsstrengirnir voru teknir
niður, og sj úklingarnir fengu kosn-
ingarrétt að nýju. Þeim voru veitt
helgarleyfi og eins mánaðar sum-
arleyfi, sem þeir máttu eyða utan
sjúkrahússins.
Það var Stanley fremur en nokk-
ur annar einstaklingur, sem kveikti
neistann og nærði hann, er varð til
þess að umbreyta Carville úr mið-
alda „holdsveikranýlendu" í nýtízku
sjúkrahús.
Úreltum takmörkunum stjórnar-
valda var síðan sópað burt, er nýj-
ar læknisfræðilegar niðurstöður
fengust smám saman. Stærsti vís-
indalegi sigurinn var unninn á
fimmta tug aldarinnar, þegar dr.
Guy Faget hóf fyrstu sulfonelækn-
ingar í Carville. Sulfonelyf hefta
mögnun Hansensveikinnar, fáist
rétt sjúkdómsgreining nógu fljótt.
Lyf þessi voru reynd á Stanley, en
þau gögnuðu ekkert.
Þegar ég hitti Stanley fyrst í Car-
ville, stóð hann í bréfasambandi við
lækna um víða veröld, og var efni
bréfanna nýjustu uppgötvanir í bar-
áttunni gegn sjúkdómi þessum. Auk
þess að gefa út fréttablað sitt (sem
var nú orðið ásjálegt tímarit, er
kom út annan hvern mánuð, og
hafði samtals 24.000 kaupendur í 94
löndum), var hann áskrifandi að
blaðaúrklippuþjónustu og fékk
stöðugt sendar blaðaúrklippur það-
an, sem hann hélt saman og flokk-
aði. Hann fylgdist með útvarpsþátt-
um og efni bóka og tímarita og
gætti þess að senda áminningar, ef
þar var um að ræða notkun orðsins
,,holdsveikur“ í niðrandi merkingu.
Þegar Bob Cansidine dálkahöfundur
líkti Alcatrazfangelsinu við holds-
veikrahæli, bauð Stanley honum til
Carville, svo að hann gæti séð,
hvernig nýtízku holdsveikrahæli
lítur út í raun og veru með sínum
golfvelli, útiborðhaldslundi og fiski-
sælum vötnum til siglinga. Consid-
ine bætti fyrir orð sín með því að
fylla einn dálk sinn, sem birtist í
blöðum um land allt, með stað-
reyndum um Hansensveiki (en upp-
lýsingar þær hafði hann fengið hjá
Stanley).
Barátta Stanleys bar aldrei hinn
minnsta keim af sjálfsmeðaumkun.
Hann var stöðugt að hvetja sjúk-
linga í Carville til þess að hjálpa
þjáðum meðbræðrum, sem enn verra
væri ástatt um en þá sjálfa. Þegar
Filippseyjakonan Josefina Guerrero,
er vann stórafrek sem njósnari fyrir'
bandaríska herinn í síðari heims-
styrjöldinni, kom sem sjúklingur til