Úrval - 01.07.1971, Side 75
HIN STÓRKOSTLEGA VIÐREISN NÍGERÍU
73
hefndaraðgerðir að ræða og gerði
strax ráðstafanir til þess að veita
Austurmiðfylkinu, hjarta uppreisn-
arsvæðisins, full réttindi innan
fylkjasambands Nigeríu til jafns við
hin fylkin. Fylkisstjóri var skipað-
ur Anthony Asika, 34 ára að aldri.
Hann er Iboi, sem hafði haldið
tryggð með ríkisstjórn Nigeríu, með-
an á styrjöldinni stóð. Gowon gerði
sér far um að leggja áherzlu á, að
fylkisstjórn Asika, sem er eingöngu
skipuð Iboum, hefði fulla sjálfs-
sjórn innan fylkjasambandsins. Þeg-
ar Asika tilkynnti um val manna í
fylkisstjórn sína, urðu Iboar undr-
andi og fegnir, því að af 11 meðlim-
um hennar höfðu 8 barizt fyrir mál-
stað Biafra í borgarastyrjöldinni.
Þar eð atvinnuleysi og eyðilegging
af völdum stríðsins gerir fylkis-
stjórn Miðausturfylkisins erfitt fyr-
ir um að afla nægilegra tekna, hef-
ur Gowon lagt fram 5.6 milljón doll-
ára á mánuði til starfrækslu fylkis-
ins, án þess að mikið bæri á.
Eitt af því, sem var mest aðkall-
andi, var að sannfæra Iboa um. að
þeir gætu enn á ný gegnt lykil-
hlutverkum í efnahagslegu og
stjórnmálalegu lífi Nigeríu. Yfir
200.000 Iboar hafa nú aftur fengið
sín fyrri störf eða ný í ýmsum rík-
isstjórnardeildum og opinberum
fyrirtækjum. Eitt af því, sem átti
mikinn þátt í því að gera Iboa aft-
ur hliðholla ríkisstjórn Nigeríu, var
sú staðreynd, að þegar eigendur ým-
issa eigna meðal Iboa yfirgáfu þær
og flykktust undir merki Ojukwu,
var leiga innheimt fyrir notkun
þessara eigna og hún lögð til hlið-
ar og greidd hinum réttmætu eig-
endum í lok stríðsins. Ríkisstjórn
Gowons afnam líka bann við
greiðslu úr bankareikningum á
svæðum þeim, sem uppreisnarmenn
höfðu á valdi sinu, en þær inneign-
ir höfðu fyrst verið frystar. Þannig
fengu þúsundir smáinnstæðueig-
enda næstum 12 milljónir dollara til
ráðstöfunar.
Gowon gerði sér sérstaklega far
um að tryggja sér samstarf þeirra
manna, sem höfðu staðið framar-
lega í fylkingu uppreisnarmanna.
Hann skipaði þá að nýju í þýðing-
armikil embætti. N.U. Akpan, einn
af nánustu ráðgjöfum Ojukwu, er
nú kanslari Nigeríuháskóla, sem Go-
won flýtti sér að opna aftur í stríðs-
lok, svo að 1800 kennarar og nem-
endur gætu hafið þar störf að nýju
tafarlaust. En flestir þeirra eru
reyndar Iboar. Annar náinn sam-
starfsmaður Ojukwu, George Nwan-
ze að nafni, er aðstoðarráðherra í
Upplýsingamálaráðuneyti ríkisins,
en það er mjög ,,viðkvæm“ ábyrgð-
arstaða. Francis Ohi, Iboi, sem sett-
ur var í fangelsi af ríkisyfirvöldun-
um í borgarastyrjöldinni, er nú að-
stoðarráðherra Iðnaðarmálaráðu-
neytisins, sem gegnir mjög þýðing-
armiklu hlutverki í ríkisrekstrinum.
I janúarmánuði síðastliðnum, eða
nákvæmlega einu ári frá stríðslok-
um, ferðaðist Gowon um kjarna
þess svæðis, sem gengið hafði und-
ir nafninu Biafra. Og honum var
tekið þar með kostum og kynjum.
Jafnvel í Nnewi, sem er heimabær
Ojukwu, færði fólkið Gowon 12
hvítar dúfur að gjöf, enn fremur
fílstönn og örn í hvítu búri, en þetta
eru allt tákn um bræðralag það,