Úrval - 01.07.1971, Qupperneq 78
76
öðrum ættflokk létu til skarar
skríða gegn þeim þ. 29. júlí.
Nigeríumenn og ýmsir þeir út-
lendingar, sem hafa mjög mismun-
andi skoðanir á öllum hlutum, lýsa
yfir því, að Gowon hafi sannarlega
verið leiðtogi og hafi sýnt kænsku,
vizku, hugrekki og samúð í því
starfi sínu. Sumir velta því að vísu
fyrir sér, hvort valdið kunni ekki
að hafa slæm áhrif á unga hershöfð-
ingjann og valda því, að hann geri
ráðstafanir til þess, að hann megi
ríkja að eilífu. En samt var það sem
sannur stjórnvitringur væri að tala,
er Gowon sagði við mig: „Stöðug-
leiki og jafnvægi krefst þess í öll-
um löndum, að herinn sé trúr borg-
aralegri ríkisstjórn. Við verðum að
snúa aftur til borgaralegra stjórnar-
.hátta.“ Nokkrum dögum síðar til-
kynnti hann nigersku þjóðinni, að
það yrði gert árið 1976. „Hann mun
halda orð sín,“ sagði Nigeríumað-
ur einn við mig. „Það hefur hann
alltaf gert.“
FARARTÁLMAR Á VEGINUM
En Nigería verður að sigrast á
geysilegum farartálmum, áður en
henni tekst að verða það mikla ríki,
sem Gowon vill, að hún verði. Sí-
felldar deilur og kíf milli hinna 250
ættflokka landsins, sem einkennast
af öfundsýki, er til dæmis enn mjög
hættulegt ríkinu. Þessi ógnun of-
stækisfullrar ættflokkastefnu veld-
ur því, að Gowon heimtar, að Ni-
geria haldi fast við 12 fylkja kerf-
ið, svo að enginn einn ættflokkur
geti ríkt yfir öðrum. Það, sem Go-
won hefur í rauninni gert, er að
skapa meirihluta úr minnihluta-
ÚRVAL
ættflokkum. En getur slíkt fyrir-
komulag haldizt?
Það eru svo mikil brögð að þjófn-
uðum, svikum og stjórnmálalegri
spillingu, að þar var nýlega kvart-
að yfir slíku í grein einni í blaðinu
„Nýi Nigeríumaðurinn“ með þess-
um orðum: „Það er álitið vera skrýt-
ið að vera heiðarlegur og einlægur.“
Þúsundir Nigeríumanna gripu feg-
ings hendi það tækifæri, sem hjálp-
arstarfið að stríði loknu veitti þeim
til þess að tryggja það rækilega, að
þeir væru ekki álitnir eitthvað
„smáskrýtnir". Geysilegar birgðir
matvæla, lyfja og alls konar varn-
ings, allt frá hitamælum til vöru-
bíla, hurfu bara með öllu. Gowon
hefur sagt spillingunni stríð á hend-
ur. Og hann er einn hinna fáu af
æðstu mönnum landsins, sem hefur
svo hreinan skjöld, að hann getur
gert slíkt, án þess að fólk hlægi að
honum sem hræsnara. En getur jafn-
vel maður á borð við Gowon þurrk-
að út svo rótgróna og útbreidda
spillingu, sérstaklega eftir að geysi-
legt olíufé er byrjað að streyma inn
í landið?
Sú staðreynd, að Rússland seldi
Nigeríu vopn fyrir 20 milljón doll-
ara í stríðinu, hefur fengið suma til
þess að velta því fyrir sér, hvort
Nigería sé ekki þegar í vasa Rússa,
„eins og Egyptaland er“. Okoi Ari-
kpo utanríkisráðherra mælti á þessa
leið við mig og sýndi þannig at-
hyglisverða hreinskilni: „Það er eins
með Rússana og öll stórveldi, að
þeir hafa reynt og þeir reyna enn
að verða eins áhrifamiklir í Niger-
íu og mögulegt er. En þeir gæta
þess að reyna ekki að þrengja skoð-