Úrval - 01.07.1971, Side 88
86
skólasvæðinu. En seint á laugar-
dagskvöldinu hafði 2000 manna hóp-
ur gert aðsúg að Þjálfunarmiðstöð
varaliðs Bandaríkjanna barna á há-
skólasvæðinu, og bráðlega hafði ver-
ið kveikt í því. Brunalið var kallað
á vettvang, en hópurinn hafði ráðizt
grimmilega gegn brunaliðsmönnun-
um og rekið þá burt, skorið í sund-
ur vatnsslöngurnar og rifið þær og
tætt með íshökum og sveðjum.
Seint á laugardagskvöldinu hafði
Þjóðvarðliðið komið á vettvang þar
og bælt niður óeirðirnar. En á
sunnudeginum höfðu gerzt ýmsir
alvarlegir atburðir. Þjóðvarðliðs-
menn höfðu neyðzt til þess að tvístra
hópum stúdenta, sem höfðu hótað að
beita ofbeldi og höfðu alls ekki
skeytt útgöngubanninu. Sumir stúd-
entar höfðu hlotið smástungur og
skrámur eft.ir byssustingi, en enginn
þeirra hafði særzt alvarlega. Frá
því á sunnudagskvöldi til dögunar
á mánudagsmorgni höfðu þjóðvarð-
liðsmenn verið á verði hvarvetna á
háskólasvæðinu, og um nóttina
hafði þyrlum verið flogið yfir svæð-
ið, og hin draugalegu leitarljós
þeirra höfðu leikið um stúdenta-
garðana.
ÞRUMUGNÝR í FJARSKA
Þegar stúdentarnir gengu inn í
kennslustofur sínar þennan fagra
vormorgun, voru margir þeirra
sannfærðir um, að háskólalífið
mundi halda áfram sinn vanagang
þrátt fyrir návist Þjóðvarðliðsins.
Aðrir voru kvíðnari. Sue Greco,
sem er nýstúdent við háskólann,
minnist tilkynningar, sem fest hafði
ÚRVAL
verið upp á salernishurð í stúdenta-
garðinum hennar.
AÐVÖRUN:
Sett hafa verið herlög, sem yður
ber að hlýða.
James Rhodes, fylkisstjóri.
„Þar á eftir fylgdu 7 eða 8 reglur,“
segir Sue, „þar sem okkur var sagt,
hvað við mættum og mættum ekki
gera. Það var áugljóst, að Þjóð-
varðliðið réð öllu.“
Hún hafði á röngu að standa. Það
höfðu ekki verið sett á herlög þrátt
fyrir þúsundir tilkynninga þess efn-
is. Þrem skilyrðum verður að full-
nægja, til þess að hægt sé að setja
herlög: Ástandið verður að vera
orðið slíkt, að öll stjórn borgara-
legra yfirvalda sé í molum. Einnig
verður þjóðvarðliðið að taka öll
borgaraleg völd í sínar hendur. Og
herlagayfirlýsingin verður að vera
undirrituð af fylkisstjóranum. Eng-
um þessara skilyrða hafði verið
fullnægt.
Rhodes fylkisstjóri hafði komið í
stutta heimsókn til Kentfylkishá-
skólans á sunnudaginn og hafði þá
gefið eftirfarandi yfirlýsingu: „Við
ættum að fara fram á skriflega fyr-
irskipun dómsyfirvalda, sem jafn-
gildi yfirlýsingu neyðarástands." En
það hefur hvergi verið skjalfest op-
inberlega, að farið hafi verið fram
á, að slík yfirlýsing yrði gefin, né
að slíkt leyfi hafi verið veitt. Og
reglur þær, sem fylkisstjórinn ætl-
aði að láta gilda, hafa aldrei verið
skilgreindar opinberlega. Fyrst svo
var ekki, var því aðeins um neyð-
arástand að ræða á vissu, afmörk-
uðu svæði, þ.e. neyðarástandið tók
því aðeins til þess svæðis. Og at-