Úrval - 01.07.1971, Qupperneq 105
HVAÐ GERÐIST í KENT STATE?
103
Rétt á eftir tók John Filo, sem
lagði stund á ljósmyndun, mynd af
ungri stúlku ,sem kraup við líkið.
Þessi mynd birtist í blöðum um
víða veröld og sem forsíðumynd á
fréttatímaritum. Hún er ógleyman-
leg táknmynd um sorg og örvænt-
ingu. Flestir þeir, sem sáu þessa
mynd fyrstu dagana eftir skothríð-
ina, héldu, að stúlka þessi væri
nemandi við Kentfylkisháskólann.
En í rauninni var þetta 14 ára
strokustúlka frá Floridafylki, og ná-
vist hennar þarna á þessu örlaga-
augnabliki var einskær tilviljun.
Er stúdentarnir ruddust æpandi
og bölvandi í áttina til þjóðvarðlið-
anna, skipaði Snyder mönnum sín-
um að halda burt í varúðarskyni
Um leið og þeir fóru, sneri einn
þjóðvarðliðanna sér við og kastaði
táragassprengju í áttina til hópsins.
„Hún sprakk í níu feta hæð,“ segir
Filo. „Einhver sagði, að þetta hafi
verið æfingasprengja úr plasti. Brot
úr henni flugu um allt, og það var
mikil heppni, að enginn meiddist."
Nokkrum augnablikum síðar var
lík Millers flutt burt í sjúkrabíl, en
hinn hræðilegi blóðpollur varð eft-
ir. Skyndilega hljóp stúdent þar að
með svartan fána og dýfði honum
hátíðlega í blóðpollinn. Svo sveifl-
aði hann honum á loft, þegar hann
,var orðinn gegnvotur af blóði, og
sveiflaði honum margar stórar
sveiflur, svo að blóð slettist framan
í að minnsta kosti sex nærstadda
stúdenta. Og hann hrópaði til þjóð-
varðliðanna: „Sjáið þið, hvað þið
hafið gert? Eruð þið ánægðir? Eruð
þið áncr.gðir“? En þjóðvarðliðarnir
voru þá farnir burt þaðan.
Allison Krause safnar peningum til
aö kosta mótmæli gegn stríði í októ-
ber 1969.
Peter Winnen, sem hafði verið í
stórskotaliðinu í Vietnam, gekk nið-
ur að brunarústum Þjálfunarmið-
stöðvarinnar, þar sem þjóðvarðlið-
arnir voru nú að mynda nýja línu.
Hann leitaði uppi sveitina, sem tek-
ið hafði sér stöðu nálægt hofinu.
„Vitið þið, að þið drápuð fólk
þarna uppi frá?“ spurði hann.
Þjóðvarðliðarnir svöruðu þessu
engu.
„Þið urðuð alveg óðir, eða var
ekki svo?“ spurði Winnen. Og hon-
um hnykkti við svarið, sem hann