Úrval - 01.07.1971, Page 107
HVAÐ GERÐIST í KENT STATE?
105
hann er ósvikinn hershöfðingi. Ég
sagði við hann: „Heyrðu, þið eruð
búnir að valda nógum vandræðum
hér í dag. Viljið þið þá í guðanna
bœnum leggja frá ykkur byssurn-
ar?“ Og hann svaraði: „Hermenn
hafa engan rétt til þess að leggja
frá sér byssur. Það stríðir gegn
reglum þeim, sem þeir eiga að fara
eftir.“ Þeir hafa virk skothylki í
rifflunum. Ég hefði ekki trúað því
að óreyndu. Þeir hafa virk skothylki
í rifflunum. Ef þið haldið niður eft-
ir í áttina til þeirra, munu þeir
drepa ykkur. Ég seg ykkur það satt.
Sumum ykkar finnst, að þið verðið
að gerast hetjur. Þið getið gerzt
hetjur, en hérna er líka fólk, sem
vill ekki verða fyrir skotum, fólk,
sem vill ekki láta drepa sig, þar á
meðal ég.
Rödd: Hver skipaði þeim að
skjóta?
Baron: Ég veit það ekki. En eitt
skal ég segja ykkur. Þegar virkt
skothylki er í byssu, sem hrœddur
unglingur heldur á, þá er maður
búinn að vera. Og við erum nú bú-
in að vera.
Myron Lunine, prófessor í stjórn-
málavísindum, gekk niður eftir til
þjóðvarðliðanna og bað þá innilega
um að skjóta ekki, fyrr en prófess-
orunum gæfist tækifæri til þess að
koma stúdentunum af háskólasvæð-
inu. Hann leitaði uppi Canterbury
hershöfðingja og sagði við hann:
,,Þér verðið að hafa stjórn á liði
yðar. Það má ekki verða nein frek-
ari skothríð hérna.“ Canterbury
svaraði þessu engu, en einn embætt-
ismaður Kentfylkisháskólans starði
hvasst á Lunine og sagði- „Þessir
stúdentar eiga ekki að vera þarna í
brekkunni. Einhvers staðar verður
að draga mörkin. Við verðum að
halda uppi lögum og reglu. „Lunine
fór aftur til stúdentanna til þess að
segja þeim það, sem hann hafði
heyrt.
Raddir: Leyfið þeim að skjóta
okkur! Við skulum útkljá þetta núna
strax.
Lunine fór aftur til þjóðvarðlið-
anna og grátbað þá um að skjóta
ekki, en annar embættismaður Kent-
fylkisháskólans, sem stóð þar ná-
lægt, sagði við hann: „Prófessor,
þjóðvarðliðið gengur ekki til samn-
inga, meðan það er í umsátri." Lun-
ine spurði hverjir sætu um þjóð-
varðliðanna, og maðurinn benti þá
á stúdentanna. Nú hafði hópnum
fækkað, og voru nú ekki eftir nema
um 500 stúdentar. Prófessorinn sneri
aftur til hópsins og ávarpaði hann
skjálfandi röddu.
Lunine: Haldið ykkur í skefjum.
í guðanna bænum, þeir drepa ykk-
ur, ef þið haldið ykkur ekki í skefj-
um.
Baron: Ég er dauðhrœddur um,
að einhver annar verði fyrir skoti
og ver&i drepinn.
Rödd: Heyrðu, góði, þú skalt taka
þér Martin Luther King að for-
dœmi. Ekki hefði HANN verið
hræddur.
Baron: Luther King hefði haldið
á brott. Martin Luther King skildi,
að maður verður að HALDA LÍFl
til þess að geta sigrað. Þið getið
ekki unnið neinn sigur, ef þið deyið.
Ég vil ekki, að þið deyið, krakkar!
Rödd: Látum þá bara skjóta á
okkur núna!