Úrval - 01.07.1971, Blaðsíða 108
106
ÚRVAL
(Hróp og köll, en það heyrast
ekki orðaskil).
Raddir: Hérna er Glenn Frank
kominn! Bíðið augnablik. Bígið!
Meðalhár maður, fremur breið-
leitur, gekk fram fyrir hóp stúdent-
anna. Hann var með hornspanga-
gleraugu. Þetta var Glenn Frank,
prófessor í jarðfræði. Stúdentarnir
báru mikla virðingu fyrir honum.
Þeir dáðust að honum fyrir hina
lifandi og innihaldsríku kennslu
hans, fyrir kímnigáfu har.s og hinn
mikla áhuga, sem hann hafði á mál-
efnum stúdenta og lífi þeirra yfir-
ieitt.
Nokkrum augnablikum áður hafði
Frank lagt hald á sjúkrabíl og skip-
að ökumanninum að aka tafarlaust
til staðarins, þar sem látnir og særð-
ir stúdentar lágu í blóði sínu.
Sjúkrabíll þessi varð þar fyrstur á
vettvang. Frank hafði athugað lík
þeirra Jeffs Millers og Sandy Sceu-
ers. Honum varð nú hugað til þess
möguleika að skothríð hæfist brátt
að nýju, og sú hugsun varð til þess,
að hann ávarpaði nú stúdentana af
örvæntingarfullum ákafa.
Frank: (mœlir með rödd, sem er
þrungin svo djúpri og heitri til-
finningu, að hann á erfitt með að
mœla). Hvort sem þið hafið nokk-
urn tíma hlustað á nokkurn í raun
og veru á allri ykkar œvi eða ekki,
eða tekið tillit til orða annarra eða
ekki, þá GRÁTBIÐ ég ykkur nú að
hlusta vel og taka tillit til hess, sem
ég er að segja. Ef þið dreifið ykkur
ekki nú þegar, munu beir sœkja
fram, og það getur ekki endað á
annan veg en með slátrun' VILJIÐ
ÞIÐ GERA ÞAÐ FYRIR MIG AÐ
TAKA TILLIT TIL ÞESS, SEM ÉG
ER AÐ SEGJA VIÐ YKKUR!
Andlit hans var afmyndað af sorg,
og rödd hans brast vegna örvænt-
ingarfullrar angistar. Og stúdent-
arnir hlustuðu raunverulega á hann
og tóku tillit til orða hans. Hægt og
hægt fóru þeir að halda burt í smá-
hópum. Slátruninni hafði verið af-
stýrt.
UNGUR LÖGFRÆÐINGUR,
ROSKINN DÓMARI
Enginn fylgdist með rás atburða
við Kentfylkisháskólann af meiri
athygli en ungur, kraftalegur og
myndarlegur lögfræðingur einn í
Ravenna. Ronald J. Kane, sem var
35 ára gamall, var venjulegur smá-
bæjarlögfræðingur, þangað til hann
bauð sig fram sem saksóknara fyr-
ir Portagehrepp. Hann talaði hratt
og af ákafa og var mælskur vel.
Hann reyndist verða mjög vinsæll
í baráttunni og vann með yfirburð-
um. Nú segja stjórnmálamenn í Ra-
venna, að hann verði einhvern tíma
fylkisstjóri eða öldungardeildar-
þingmaður fyrir Ohiofylki. Sumir
halda því fram, að honum hafi ver-
ið í nöp við háskólann. Hann virðist
hafa sótt tíma við Kentfylkisháskól-
ann, en ekki gengið þar sem bezt.
En í ævisöguágripi, sem hann tók
saman, forðast hann að minnast á
slíkt. „Ég? í nöp við háskólann?“
endurtekur hann. „Fáránlegt!"
Þegar Þjálfunarmiðstöð varaliðs-
ins hafði verið eyðilögð í eldi, hafði
Kane farið þess á leit við James A.
Rhodes fylkisstjóra, að hann léti
loka háskólanum. „En fylkisstjórinn
áleit, að hann hefði betra vit á