Úrval - 01.07.1971, Page 110
108
ÚRVAL
Til allrar hamingju stakk einhver
upp á því að aka stúdentunum burt
í háskólavögnunum til stórborganna
Cleveland, Columbus og Toledo, en
þaðan gátu stúdentarnir svo kom-
ist með lestum og flugvélum í allar
áttir. Vögnunum var því ekið upp
að aðaldyrum hinna ýmsu stúdenta-
garða. Og upp í þá stigu grátandi
stúlkur og ungir menn, magnvana
af reiði. Og síðan. lagði bílalestin af
stað. Líklega var þetta ömurlegasta
lest, sem lagt hefur upp frá há-
skólabæ fyr eða síðar.
Háskólasvæðið var orðið næstum
alveg autt þetta sama kvöld að und-
anskildum nokkrum þjóðvarðliðum,
sem voru þar á verði. Svo gerðist
það nokkru eftir klukkan 2 aðfara-
nótt 5. maí, að tveir menn læddust
að útjaðri háskólasvæðisins og
kveiktu í sterklegri hlöðubyggingu,
þar sem háskólinn geymdi alls kon-
ar íþróttatæki, garðyrkjutæki o.fl.
Geysilegir logar stigu upp í loftið
frá 8 eða 9 íkveikjustöðum. Og í
bjarmanum af eldinum mátti greina
mennina tvo, sem flúðu þvert yfir
grasvöll einn nálægt háskólasvæð-
inu. Þjóðvarðliðsmaður einn, sem
var á verði við bygginguna henni
til verndar, skaut tveim skotum í
áttina til þeirra í miklum flýti, en
skot hans . geiguðu. Hlaðan eyði-
lagðist algerlega. Hafi verið þörf
fyrir ögrandi verknað því til sönn-
unar, að meðal stúdenta Kentfylkis-
háskólans væri að finna byltingar-
seggi, sem svifust einskis, þá veitti
þessi íkveikja þá sönnun.
Stúdentar Kentfylkisháskólans
dreifðust víðs vegar um Bandaríkin.
Og lokun háskólans og háskóla-
svæðisins var svo alger, að Ron
Kane vildi jafnvel ekki leyfa White
rektor að líta inn á skrifstofu sína í
háskólanum. Það hefur sjaldan gerzt
í sögu Bandaríkjanna, að stofnun
hafi verið sett í svo algera „sótt-
kví“.
Kennarar og stjórnendur háskól-
ans sýndu það nú á svo óyggjandi
hátt, hversu annt þeir létu sér um
velferð stúdentanna, að slíks eru fá
dæmi í skóla- og fræðslusögu
Bandaríkjanna. Viðbrögð þeirra ylja
mann um hjartaræturnar. White
rektor hefur þetta að segja í því
efni: „Ég get ekki hugsað mér, að
það hefði verið hægt að bregðast
betur og snjallar við til lausnar
þessu erfiða viðfangsefni. Kennar-
arnir og stjórnendurnir gerðu sér
grein fyrir því, að stúdentarnir yrðu
að fá vorprófseinkunnir, svo þeir
gætu haldið áfram námi næsta vet-
ur, ef þeir óskuðu. Og því komu
prófessorarnir okkar á laggirnar
hundrað mismundandi prófundir-
búnings- og prófkerfum til þess að
gera nemendum sínum fært að ljúka
vetrarnáminu."
Það var alls ekki auðvelt við-
fangsefni. Satrom bæjarstjóri hafði
bannað hvers konar fundi og sam-
komur í Kent, svo að það var að
gera einhverjar aðrar stórsnjallar
áætlanir í því efni. Nemendur og
kennarar komu saman í kirkjum í
Akron og aðalstöðvum skátadrengja
í öðrum borgum. Komið var á bréfa-
námskeiðum fyrir þá stúdenta, sem
gátu alls ekki mætt á neinum þess-
ara staða. Glenn Frank prófessor
þaut út í bílinn sinn og ók heilu