Úrval - 01.07.1971, Blaðsíða 120
118
ÚRVAL
lands og Venezuela.
í Japan styður þjóðin og stjórn-
arkerfið einmitt þann frið og þá
andhernaðarstefnu ,sem amerískir
stúdentar krefjast hér. Japanska
stjórnarskráin bannar stríð. Sam-
krull hersins og stóriðnaðarins er
alls ekki til þar. En í árásum sínum
á þjóðfélagið eru jafönsku stúdent-
arnir samt þeir ákveðnustu af öllu
róttæku æskufólki.
Hinar geysilegu óeirðir í Frakk-
landi, sem felldu næstum ríkisstjórn
de Gaulle urðu einmitt, eftir að de
Gaulle hafði bundið endi á Alsír-
stríðið í samræmi við kröfur stúd-
enta. Franskir stúdentar áttu ekki
nein af baráttumálum amerískra
stúdenta, sem gæfu þeim tilefni til
mótmæla, og ekki heldur nein af
baráttumálum japönsku stúdent-
En samt voru gerð sams konar mót-
mæli við franska háskóla.
í Venzuela áttu stúdentarnir eng-
in baráttumál amerísku, japönsku
né frönsku stúdentanna til að berj-
ast fyrir. En samt var atferli þeirra
sama eðlis, og mótmæli beirra voru
líklega ofsafengnari en mótmæli
stúdenta í nokkrum öðrum löndum.
Hvað hefur valdið þessari upp-
reisn háskólastúdentanna um víða
veröld? Bezta skýringin er sú, sé
aðeins gefin ein skýring, að unga
fólkið hefur sagt skilið við lífshætti
foreldra sinna og hefur aðhyllzt lífs-
hætti, sem það hefur sjálft verið að
þróa með sér síðustu tvo áratugina.
Sá, sem kemur ekki auga á, að upp-
reisnirnar í Japan, Frakklandi,
Venezuela og Bandaríkjunum eru
sama eðlis að öllu því leyti, sem
máli skiptir, skynjar þannig ekki,
hvað er að gerast í heiminum.
Það er auðveldast að skilja tíma-
bilið ,sem við lifum á, ef við berum
það saman við sögu Evrópu árið
1848. Þá flæddu miklar byltingar-
hreyfingar yfir meginland Evrópu
og ollu alvarlegu uppnámi í Frakk-
landi, Þýzkalandi og austurríska-
ungverska keisaradæminu og geysi-
legum mótmælum víðar. Gamla
stjórnkerfið, sem komið var á af
Metternich og Vínarfundinum, var
að hrynja. Og þetta vissu allir. En
samt var það enn nægilega sterkt til
þess að geta komið við sjálfsvörn.
Því var hver byltingin af annarri
kæfð niður.
Bandaríkin græddu sérstaklega á
þessu, vegna þess að hingað héldu
þá þúsundir af hinum snjöllustu
Evrópubúum, sem leituðu hér griða-
staðar gegn kúgun. Nú flýja þús-
undir ungmenna okkar Bandaríkin
og leita griðastaðar í Kanada, Sví-
þjóð, Marokkó, Indlandi og Ástral-
íu. Það var furðulegt að rekast á þá
staðreynd, að margir stúdentar við
Kentfylkisháskólann voru að hugsa
alvarlega um að setjast að erlendis.
Athugun var gerð á lífi a.m.k. 12
fyrrverandi stúdenta við Kentfylk-
isháskólann, sem höfðu þegar hætt á
þetta og lagt á sig varanlega útlegð
frá ættjörð sinni.
Það er augsýnilegt, að eitt af meiri
háttar ábyrgðarhlutverkum nútíma
þjóðfélags er að koma á sættum
milli kynslóðanna. Hin róttæki
munur á lífsháttum þeirra, hinn
geysilegi munur á klæðaburði,
hreinlæti og snyrtimennsku, hár-
greiðslu, viðhorfi til vinnu, stjórn-
mála, tónlistar, trúarbragða, ætt-