Úrval - 01.07.1971, Page 121
HVAÐ GERÐIST í KENT STATE?
119
jarðarástar og kynferðislífs, má ekki
verða svo varanlegur, að um verði
að ræða aðskilnað til frambúðar.
Þetta þýðir ekki, að eldri kynslóð
þjóðfélagsins verði að afsala sér
verðmætamati, sem hún hefur tekið
að erfðum og hún metur mikils.
Það þýðir, að það verður að mynd-
ast einhver skilningur á því, sem
unga fólkið er að reyna að afreka og
koma til leiðar. Það er geysilega
mikilvægt, að eldra fólkið afneiti
ekki unga fólkinu og viðhorfum þess
sjálfkrafa.
Eldri kynslóðin ætti að viður-
kenna, að unga fólkið hefur sett
raunveruleg vandamál á oddinn með
mótmælum sínum gegn stríði, með
áhyggjum sínum af mengun um-
hverfisins, með ákveðni sinni í að
binda endi á kynþáttamisrétti og
að finna sér ný störf, sem hafi
raunverulegan tilgang fyrir það.
Klæðaburður, tónlist, málfar og
málvenjur, hárlengd og nýir siðir
í skiptum kynjanna eru tízkufyrir-
brigði, sem breytast fá einni kyn-
slóð til annarrar. Eldra fólk ætti
ekki að láta slík aukaatriði valda
sér slíkri gremju. En eiturlyf, kyn-
ferðilegur ólifnaður og ofbeldi eru
miklu alvarlegri fjrrirbigði en tízk-
an, og fólk verður að vinna gegn
þeim, hvar sem vitað er, að þau
valdi tjóni. En eldra fólk ætti að
geta greint á milli slíkra fyrirbrigða
og tízkufyribrigðanna.
Því miður gerir það það ekki oft.
Margt fullorðið fólk, foreldrar, laga-
smiðir og löggæzlumenn og höfund-
ar ritstjórnagreina, vilja, að háskól-
arnir banni algerlega lífshætti hinna
ungu innan sinna vébanda. Þetta er
gagnslaus ósk. Háskólinn verður að
taka við stúdentunum og viður-
kenna þá eins og þeir eru á sig
komnir, þegar þjóðfélagið „afhend-
ir“ honum þá. Háskólinn getur ekki
numið söguna og þróun hennar úr
gildi og látið sem hún sé ekki til.
Ef ýfingar eldri og yngri kynslóð-
arinnar verða að algerri styrjöld,
eins og sumir róttæki leiðtogar mæla
með, mun eldri kynslóðin örugglega
ganga með sigur af hólmi, því að
hún hefur lögregluna, herinn og
valdið. Það er þess vegna algert
skilyrði, að ungt fólk slái svolítið af
kröfum sínum. Það ætti fyrst og
fremst: AS vinna að jramgangi
stefnumála sinna innan vébanda
laganna. Lagfæringar á ýmsum
raunverulegum vanköntum þjóðfé-
lagsins verða að fara fram innan
vébanda laganna, þ.e. á löglegn hátt.
Hin hægfara uppbygging lýðræðis-
kerfis okkar krafðist bæði siðferði-
legs stuðnings almennings og þol-
inmæði. Þjóðfélagið mun krefjast
þess, að stúdentarnir sýni meiri
ábyrgð í verkum sínum. fkveikjur
og hvatning til óeirða eru glæpir,
og fólk, sem er sekt um slíka glæpi,
ætti að setja í fangelsi. Hin algenga
hugmynd um háskólann sem griða-
stað, þar sem aldrei ætti að leyfa
lögreglu né þjóðvarðliði að stíga
fæti sínum, hefur aldrei verið við-
urkennd í lögum okkar. Strangar,
nýjar reglugerðir hafa þegar verið
samþykktar fyrir marga háskóla,
þar á meðal Kentfylkisháskólann.
Þær ættu ekki að verða neinu því
unga fólki til byrði, sem óskar raun-
verulega að afla sér menntunar.
A8 virða siðferðilegar skoðanir