Úrval - 01.07.1971, Qupperneq 123
HVAÐ GERÐIST í KENT STATE?
121
sumir stúdentar Kentfylkisháskól-
ans orðið virkari í stjórnmálalegu
tilliti, en aðrir óvirkari. En það, sem
allir í háskólanum og bænum virð-
ast hafa öðalzt í sameiningu, er nýtt
mat á gildi andofbeldisstefnu og lífs-
hátta í hennar anda. Jafnvel hinir
róttæku, sem tóku þátt í maímót-
mælunum í Washington gegn Viet-
namstríðinu og herkvaðningunni,
voru rólegir í síðustu viku, þegar
þeir hófu ólöglegt setuverkfall um-
hverfis Rockwellbygginguna, nú-
verandi aðsetur Þjálfunarmiðstöðv-
ar varaliðs Bandaríkjahers á há-
skólasvæðinu, eftir að hinni form-
legu minningarathöfn var lokið.
Robert I. White, rektor Kentfylkis-
háskólans, skipaði fyrst fyrir um, að
þeir skyldu fjarlægðir með valdi, en
sveit háskólalögreglumanna var til
taks með óeirðaútbúnað sinn. En
hann var talinn á að afturkalla þá
ákvörðun sína til þess að komast hjá
átökum.
Þessi fjögurra daga minningar-
hátíð í Kentfylkisháskólanum hófst
með ýmsum dagskrárliðum, sem
voru til þess ætlaðir að draga úr
spennu. Haldin var flugdrekasýning
og keppni í „blöðrutyggjóblæstri“.
Næsta dag talaði Julian Bond, lög-
fræðingur frá Georgiafylki, til stúd-
entanna og hvatti þá til þess að
forðast „ævintýrastefnu“ og að
beina reiði sinni, vegna dauða stúd-
entanna í jákvæðan farveg með því
að gerast sívirkir á stjórnmálasvið-
inu og vinna stöðugt með löglegum
stjórnmálalegum aðferðum,, „en
með þeirra hjálp er hægt að ná
völdunum á venjulegan, löglegan
hátt í samræmi við kennslubókar-
uppskrift". Næsta dag talaði svarti
gamanleikarinn Dick Gregory um
möguleikann á að neyða yfirvöld
til að binda endi á Vietnamstríðið á
þann hátt, að stórir hópar fólks
bindust samtökum um að hætta við-
skiptum við ýmsa aðilja.
Það kvöld voru 4500 stúdentar
viðstaddir, er nokkrir félagar þeirra
hófu 26 klukkustunda kertaljósvöku
á nákvæmlega þeim stöðum, þar sem
skothríð Þjóðvarðliðsins drap þau
Jeffrey Miller, sem var 20 ára, Alli-
son Krause, sem var 19 ára, William
Slhroeder, sem var 19 ára, og Sandy
Scheuer, sem var 20 ára.
A hinu raunverulega ársafmæli
harmleiksins söfnuðust um 7.000
stúdentar saman í grasigróinni
brekkunni rétt fyrir neðan hæðina,
þar sem hörfandi þjóðvarðliðarnir
sneru sér snögglega við, köstuðu sér
á kné og skutu á bæði mótmælendur
og einnig þá stúdenta, sem áttu leið
um svæðið. Við athöfn þessa talaði
mannréttindaleiðtoginn Jesse Jark-
son. Hann minntist á fordæmi um
beitingu andofbeldisstefnunnar í
bænum Newark í New Jerseyfylki.
Hann sagði, að áður hefði kjörorð
negranna þar verið „brennum“, en
nú væri það orðið „lærurn". „Og nú
er Newark raunverulega orðin
þeirra borg,“ sagði hann. Dean
Kahler, 21 árs gamall stúdent, sem
fékk skot í mænuna í kúlnahríðinni,
talaði um stríðið í Vietnam. Það er
óvíst, hvort Kahler mun nokkru
sinni geta gengið framar. Hann tal-
aði úr hjólastól sínum. „Þetta stríð
hefur drepið fjögur af bræðrum
okkar og systrum,“ sagði hann. „Nú
verður Kentfylkisháskólinn að