Goðasteinn - 01.09.1962, Blaðsíða 7
Sr. Sigurdur Einarsson í Holti hefur í
þrjá áratugi, öðrum fremur, borið hátt
merki málsnilldar i raðu og riti. Ljóða-
bækur hans skipa honum á bekk með
beztu skáldum þjóðarinnar á þessu
tímabili. „Goðasteinn' fagnar því að
fá samfylgd sr. Sigurðar úr hlaði í
nýortu kvœði um Pál biskup og Skál-
holt, hinn forna, andlega höfuðstað
Islendinga.
Sigurður Einarsson í Holti:
Páll biskup Jíiiissiiii
Hve oft hefur hugur minn fylgt þér skref fyrir skref
og skyggnzt um veg þinn gegnum aldanna nótt,
með þér í helgi hljóðra. mustera sótt
og hirðsali gist með konungum fjarlægra stranda.
Þú kristninnar vizku sóttir til suðrænna landa,
en söngur þíns hjarta var Eddunnar norræna stef.
Hin styrka lund má stórar andstæður brúa,
í stóru geði hetjan og auðmýktin búa.
Með þér hélt Oddaverjanna veglæti inn
og varpaði nýjum ljóma á Skálholtsstað.
Með tilkomu þinni var brotið í sögu hans blað,
þá byrjaði tign hans að lýsa til fjarlægra stranda.
Til hans var þaðan af horft um úrlausn í vanda,
frá honum féll viðreisnarorðið og dómurinn,
og hjörtun lærðu himnanna leiðir að rata.
Hin heilögu leiðartákn krossinn og frelsarans jata.
Goðasteinn
J