Goðasteinn - 01.09.1962, Blaðsíða 19
hennar og börn fóru. Anna Þorvarðardóttir í Eyvindarholti var
bezta vinkona Onnu og saknaði þess, að kirkjusæti hennar var
autt. Hún spurði dóttur Önnu eftir messu, hvernig því viki við, að
nafna sín hefði ekki komið, og fékk að vita sem var. Hún lét
illa yfir, spurði nánar út í ástæður og sagði: „Hvernig er það
annars, er hún ekki kaffilaus?“ „Skammt er til þess“, var svarið.
Árni Sighvatsson í Eyindarholti kom færandi hendi að Fitjarmýri
eftir páskahelgina, hafði meðferðis pund af kaffi ásamt kaffibæti
og sykri. Anna felldi gleðitár við gjöfina.
Heimilið á Fitjarmýri var orðlagt fyrir þrifnað og snyrti-
mennsku. Guðrækni lærðu börnin með móðurmálinu. Gömul kona
dó á Fitjarmýri, meðan börnin voru í æsku. Anna lét þau signa
yfir kistu hennar á hverjum morgni og lesa þar bæn, meðan líkið
stóð uppi.
Or þessum jarðvegi var Einar Bergsteinsson vaxinn. Hann
dvaldi með foreldrum sínum, meðan þeirra naut við, hafði lítið
af skólagöngu að segja, en varð þó svo vel menntaður, að hann
átti ekki síður samleið með lærðum mönnum en ólærðum, er út
í lífið kom. Svo notadrjúg var hin íslenzka alþýðumenning, þar
sem gáfur voru fyrir hendi. Allan efra hlut ævinnar átti Einar
heimili á Hrútafelli undir Eyjafjöllum.
Heilsa Einars leyfði honum ekki harðræði útiverka. Hann
lærði fatasaum og stundaði það starf um tugi ára, mest í Rang-
árvallasýslu, en talsvert í Vestur-Skaftafellssýslu, Árnessýslu og
víðar. Ár eftir ár ferðaðist hann þannig bæ frá bæ, öllum aufúsu-
gestur, vinnandi, skemmtandi, fræðandi. Merkiskona í Rangár-
þingi minntist Einars þannig í mín eyru: „Svo ágæt sem verkin
hans Einars voru, var þó miklu meira um vert að fá hann til
að tala við hann. Það birti í bænum, þegar hann kom“.
Ég átti því láni að fagna að þekkja Einar í mörg ár. Hann
vann nokkrum sinnum á heimili mínu og festi við okkur tryggð,
sem aldrei brást. Vinfesti hans var frábær, þar sem hún tók
heima á annað borð, og sjálfur lét hann alltaf meira í té en
hann þáði af öðrum.
Einar var vitur maður, orðsnjall og orðhagur, svo af bar,
„rómurinn mikill yfir málinu“ eins og segir í fornri sögu. Daglegt
17
Goðasteinn