Goðasteinn - 01.09.1962, Side 38

Goðasteinn - 01.09.1962, Side 38
Jón R. Hjálmarsson Eifl sinn litfi að ----------■ OL'fa Rássain Island í Norðurlandaófriðnum mikla, á árunum 1700 til 1721, var Danaveldi oft illa statt. Landið var í rauninni mjög lamað og fjárhagslega rúið, eftir hinar fjölmörgu styrjaldir á sautjándu öld- inni. Ríkissjóðurinn var tæmdur og vart fært að hækka eða stofna til nýrra skatta, þar eð þær byrðar, sem þegnarnir, þ. e. a. s. bændur og borgarar, báru, voru svo þungar, að eigi myndu þeir rísa undir öllu meira. Friðrik IV. konungur brást því harla glaður við, er honum bárust í hendur tillögur nokkrar, sem Norðmaður einn hafði lagt fram um, hvernig auka mætti ríkistekjurnar verulega án þess að hækka skattana, og lét hann kalla höfundinn til Kaupmanna- hafnar á sinn fund árið 17x1. Maður sá var Povel Juel, fæddur um 1675 og var kaupmannssonur frá Þrándheimi. Faðir hans, Tomas Juel, var vel stæður kaupmaður í Þrándheimi á síðari hluta 17. aldar, og auk verzlunar sinnar þar í bæ, rak hann útibú á ýmsum stöðum í Norður-Noregi. Syni átti hann þrjá, mann- vænlega. Tveir þeirra gengu menntaveginn og gerðust kirkjunnar þjónar og voru hinir nýtustu menn, en koma ekki við þessa sögu. Hinn þriðji, Povel, hlaut litla menntun, en lærði þó lestur og skrift og eitthvað í reikningi. Var snemma ákveðið, að hann tæki við verzluninni eftir föður sinn, og var honum á unga aldri falið að reka útibúin í Norður-Noregi. Hann kynnti sér og ungur ýmislegt varðandi lögfræði og virðist hafa aflað sér haldgóðrar 36 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.