Goðasteinn - 01.09.1962, Qupperneq 12

Goðasteinn - 01.09.1962, Qupperneq 12
gróf þá botninn svo ört og dýpkaði farveginn, að Jón gat ekki náð sér upp á skörina og gerði ekki betur en halda sér, því straumur- inn lagðist á hann með ofurþunga. Þorvarður þreif þá af sér ullartrefil, sem hann hafði um hálsinn, og lét Jón taka í annan endann. Komst hann við það upp á skörina. Varð þeim nú báð- um ljóst, að ófært var austur yfir vatnið, leiðin með öllu lokuð. Eftir nokkra íhugun tóku þeir það ráð að kalla til piltarma og segja þeim að fara suður með vatninu, allt fram að sjó, en sjálfir sögðust þeir myndu fara suður í Hjörleifshöfða og fá þar menn til að fara til móts við þá. Við sjóinn, töldu þeir víst, að vatnið myndi fært kunnugum mönnum. Þeir Jón og Þorvarður tóku nú stefnu á Hjörleifshöfða, en varla hafa þeir verið glaðir í huga að skiljast svo við félaga sína á eyðum úti, degi tekið að halla og loftsútlit tvísýnt. Gengu þeir fyrst svo hratt sem þeir máttu, en brátt varð þeim erfið gangan, því fötin frusu í gegn og urðu sem stokkur. Áttu þeir óhægt um vik í þeim klakafjötrum og þreyttust mjög. Voru þeir nálega uppgefnir, þegar þeir komu að Höfðanum og leituðu upp- göngu, þar sem farið var heim að bænum. Við túnið fleygði Jón sér niður, en Þorvarður hélt áfram og gerði vart við sig, sem fyrr segir. Naumast hafði hann lokið sögu sinni, er barið var að dyrum. Jón var þar kominn og var þegar leiddur til baðstofu. Ula gekk honum að komast upp baðstofustigann, því hann gat ekki beygt hnéliðina, buxurnar voru svo harðfrosnar. Ekki voru þá aðrir karlmenn heima á Hjörleifshöfða en Guðjón bróðir minn og Sigurður föðurbróðir minn, þá nálega sjötugur. Guðjón tygjaði sig í skyndi og fór út í frostkalda vetrarnóttina til. hjálpar hinum nauðstöddu mönnum. Ekki var birta af tungli og þó ekki dimmt, því loft var lítið skýjað. Illa gekk þeim Jóni og Þorvarði að komast úr vosklæðunum, og biðu þeir alllengi, meðan baðstofuhitinn linaði nokkuð klakann. Man ég, að Jón tók hníf og risti sokka sína ofan frá og niður úr. Þeir náðu upp fyrir hné og voru utan yfir buxunum. Var það nú allt samfrosið. Móðir mín bjó um þá félaga í sínu rúmi, en sjálfri sér gerði hún hvílu á gólfinu. Síðan var þeim borinn matur, og urðu þeir hvoru tveggja fegnir, hvíldinni og kvöldverðinum. Ekkert IQ Godasteinn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Goðasteinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.