Goðasteinn - 01.09.1962, Page 26

Goðasteinn - 01.09.1962, Page 26
Talið frá hœgri: Ragnar Júlíusson, Einar Birnir, Ólafur H. Kristjánsson, Jón R. Hjálmarsson, Stefnir Helgason, Björn Arason. ara. Tók hann okkur forkunnar vel og sagði okkur allt af létta um starfið. Síðar áttum við mjög ánægjulega kvöldstund á heimili hans, þar sem við hittum meðal annarra sendiherra fslands í París, Pétur Thorsteinsson. Auk aðalstöðvanna komum við í SHAPE, en svo heita hernaðarstöðvar bandalagsins, og eru þær skammt fyrir utan borgina. Þar kom á fund okkar yfirhershöfðinginn, Laurits Norstad, einkar geðþekkur maður. En minnisstæðastur af öllum þeim, sem við hittum af starfsmönnum Atlantshafsbandalagsins, er mér aldraður Kanadamaður, ættaður frá baltnesku löndunum, Lieven að nafni. Lét hann sér mjög annt um okkur og kvaðst þekkja íslendinga að öllu góðu. Hafði hann komið hingað til lands fyrir nokkrum árum og flutt hér fyrirlestur. Þegar við vorum í heimsókninni í hernaðarstöðvunum, kom ljósmyndari á vettvang og tók meðfylgjandi mynd af okkur sexmenningunum, þar sem við 24 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.