Goðasteinn - 01.09.1962, Síða 27

Goðasteinn - 01.09.1962, Síða 27
stóðum fyrir framan aðalinngang hússins. Auk bækistöðva Atlants- hafsbandalagsins heimsóttum við Efnahagssamvinnustofnun Evrópu, sem er til húsa í hinni fornfrægu Muette-höll, er áður hýsti kónga og keisara. Þar ávörpuðu okkur norskir og sænskir fulltrúar og sögðu okkur margt um störf stofnunarinnar. í bækistöðvum Atlantshafsbandalagsins virtist alltaf vera mesti sægur af aðkomufólki af ýmsu þjóðerni, og frétti ég, að vart liði svo dagur, að ekki kæmi ný sendinefnd frá einhverju aðildarríkj- anna cg stundum kæmi fleiri en einn hópur í einu. Samtímis okkur var þarna t. d. hópur danskra stúdenta, og kynntumst við þeim lítillega. Að lokinni dvöl okkar sem gestir bandalagsins skildust brátt leiðir okkar samferðamannanna. En áður en það yrði, áttum við sex saman mjög skemmtilegt kvöld í Rauðu myllunni, sem er þekkt veitingahús og skemmtistaður nálægt Pigalle-torgi í Mont- martre-hverfi. Þar sá ég töfra- og fjöllistafólk, sem bar langt af því, sem ég hafði áður kynnzt. Innan skamms vorum við Ólafur H. Kristjánsson tveir eftir af sendinefndinni og fylgdumst við að, það sem eftir var ferðarinnar. Dvöldumst við rúma viku í París, eftir að gestgjafar okkar í Atlantshafsbandalaginu slepptu af okkur hendinni, og höfðum næg verkefni á hverjum degi frá morgni til kvölds við að skoða þessa fögru borg og furður hennar. En þótt við værum vel að, var það ekki nema fátt eitt, sem við komurnst yfir að athuga, því að af svo miklu er að taka. París stendur á nokkrum hæðum báðum megin Signufljóts. Áin hefur frá upphafi verið lífæð borgarinnar, og fer um hana mikill sægur skipa og báta. f ánni eru tvær litlar eyjar, og á þeim hefur verið elzta byggð á þessum slóðum og þá sennilega á Borgarey eða Isle de la Cité. Þar stóð keltneskt þorp, þegar Júlíus Cæsar lagði Gallíu undir Rómaveldi á sjötta áratug fyrir upphaf tímatals okkar. Á fyrstu öldunum eftir Krist óx þarna upp töluverð borg í skjóli hins rómverska friðar, en á þriðju öld flæddu germanskir árásar- menn inn í landið og unnu borginni mikið tjón. Hún rétti aftur við á valdatímum konunga af Meróvingaætt, og höfðu þessir konungar þar oft aðsetur, en hnignaði aftur á dögum Karólinga. Á níundu Godasteinn 25

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.