Goðasteinn - 01.09.1962, Blaðsíða 37
Glíman sú var grimmileg,
get ég þess við drengi,
hann í tagl, en hausinn ég
héldum báðir lengi. B. Þ.
Öll er leiðin öllum myrk
allt að grafarbakka.
Allir mega allan styrk
allra föður þakka. B. Þ.
Er á róli einsamall,
ei er sagt hann steli,
bugðulegur barnakall
Benedikt frá Seli. B. Þ.
Nú er bæði eldur og ís,
Islands gömlu meinin.
Jörðin, loft og lögur frýs,
líkist allt við steininn.
Þegar loksins lokar brá
ljúfur svefn og draumur,
heims er líka horfin þá
hugarsýki og glaumur.
-o-
Sighvatur Árnason, alþingismaður í Eyvindarholti undir Eyja-
fjöllum, f. 1823, d. 1911, lét eftir sig ýmsar skrifaðar, sögulegar
heimildir. Er þar merkast annáll um 19. öldina, auðugur að sunn-
lenzku efni. Börn frú Sigríðar Sighvatsdóttur frá Ejrvindarholti
fengu byggðasafninu í Skógum þessi gögn til eignar. Bíða þau
þess, að þeim verði meiri gaumur gefinn. Sighvatur í Eyvindar-
holti var í röð merkustu alþingismanna á 19. öld, maður algerlega
sjálfmenntaður, brauðryðjandi alþýðufræðslu. Ævisaga hans bíður
góðs manns.
Goðasteinn
35