Goðasteinn - 01.06.1986, Blaðsíða 40
Jón Jónsson:
Krukkspá og Kleykir
í síðasta hefti Goðasteins var nokkuð fjallað um Krukkspá, og
m.a. minnst á klettinn Kleyki. Ekkert er mér kunnugt um þann
klett, sem var hjá Uppsölum, en klettur allmikill er á suðvesturhorni
Hestgerðismúla, sem að sögn Skarphéðins Gíslasonar á Vagns-
stöðum heitir þessu nafni. Við skoðuðum hann sameiginlega 1952.
Læt ég hér með fylgja mynd af kletti þeim, sem svo sannarlega þer
nafn með rentu. Mjög svo áhugaverð er jarðfræði hans og
umhverfis, en ekki er rúm fyrir það hér.
Ýmsar sagnir tengdar Krukkspá voru enn við lýði í mínu ung-
dæmi og vil ég hér tilfæra nokkrar.
Á Kálfafelli í Fljótshverfi er lækjarspræna vestan við bæinn,
sýnilega gamli bæjarlækurinn, heitir Öská og á samkvæmt
Krukkspá að taka Kálfafellsbæinn. Sögnin um Hellu á Núpsstað
og Grettistakið í Kálfafellskoti er mér kunn. Þá sögn heyrði ég að
Krukkur hefði spáð fyrir um Skaftárelda. Spána sjálfa hef ég ekki
heyrt, en að spásögn lokinni á Krukkir að hafa bætt við: Þá vildi
ekki Krukkur lifa þótt kost á ætti.
Ein var sú spá að Prestsbakkakirkja ætti að fjúka út í Geirlandsá
þegar þriðji presturinn væri þar jarðaður. Aðra hef ég heyrt segja,
fyrsti presturinn.
Líklega hefur það verið séra Páll Pálsson prófastur f. 17.5 1797
d. 11.11 1861. Móðir mín kvaðst hafa heyrt sagt að svo mikið hvass-
virði hafi verið þegar jarðarförin fór fram að menn hafi verið farnir
að óttast um kirkjuna. Legsteinn séra Páls er fyrir vesturgafli
kirkjunnar sunnan megin og er marmaraplata á. Áletrun er nú
mjög máð, en var vel læsileg þegar ég fyrst man.
38
Goðasteinn