Goðasteinn - 01.06.1986, Blaðsíða 55
af heilum Rúg óbleittum. Nauðsýnlegt skal vera að allur peningur sem
þetta fóður er géfið fái nóga vökvun, annað hvört af mjúkum snjó
eða vatni.
Svo vel hafa Vopnfyrðingar fundið reikning sinn við þetta fóður
að sumir af þeim, og þar á meðal orðlagðir forstands menn skulu
síðan áðurnefndann vetur árlega hafa géfið sumu af fé sínu þetta
fóður, einkum lömbum, til þarmeð að spara hey sín.
Ég get því ekki hikað við að biðja ykkur að gjöra þetta sem
flestum kunnugt og ráða Hreppabúum yðar fremur til að leita
skepnum sínum þessa lífsmeðals heldur enn nú héðanaf að skéra
þær niður og gæti nokkur haft gott héraf, þó ei væri fleiri en einn
eða tveir, þætti mér línum þessum vera vel varið.”
Þetta hér fáheyrða hjálpar meðal var á yfrið mörgum stöðum í
Húnavatns Sýslu við haft en einkanlega á þeirri hörðu útsveit næst
Höndlunarstaðnum hvar þörfin var mest og hægst til Rúgsins að
ná. Reyndist það fóður fullt svo áreiðanlegt sem af því var sagt og
hefir frelsað frá horfalli mikinn fjölda penings, einkum sauð-
fénaðar, svo höfundur þessa bréfs fór ekki á mis við þá gleði að sjá
sína velgrunduðu og hollu ráðlegging verða að tilætluðum notum,
enn þótt honum ei hafi hlotnast opinberlega á prenti jafnsnjallt
þakklæti og fagurt hrós, því er Höfundi ennar innsendu Ritgjörðar
í S.P. 2. Arg, No 7. hefir þóknast að úthluta Amtmanni Thoraren-
sem fyrir hans tilgángsgóða umburðarbréf af 28da Septbr. 1835”.
Ég hefi nú dregið fram nokkuð um það efni er svarar þeim
spurningum er ég varpaði fram í upphafi máls míns. Ef þær vekja
umræður og gagnakönnun þá er tilgangi mínum náð.
Goðasteinn
53