Goðasteinn - 01.06.1986, Blaðsíða 69
þangað eða til San Antonio, sem er stórborg i vesturhluta landsins
og mun jafnvel vera eitthvað stærri en Dallas.
Landið er fremur láglent og sérstaklega suður undir strönd
Mexíkóflóa, þar sem mikið ber á votlendi og fenjum. Hærra uppi
eru hæðir og ásar, en hvergi verulegt fjalllendi, nema vestur undir
landamærunum að Mexíkó, þar sem hæstu tindar teygja sig upp í
2667 metra hæð yfir sjó. Víða er loftslag heitt og þurrt og landið
því hálfgerð eyðimörk á köflum og þá einkum í suðvestur
hlutanum. En í austurhluta landsins, þar sem við dvöldumst mest,
er úrkoman meiri, gróðurfar fjölbreytt og víða þróttmiklir skógar.
Veðráttan var ágæt þennan vortíma sem við vorum í landinu, sól-
ríkt og bjart, og hitastig oftast eins og á bestu sumardögum heima,
en talsvert gat orðið svalt um nætur. Sjaldan mun falla snjór á
þessum slóðum, en ef það kemur fyrir þykir það merkisviðburður.
Um sögu landsins er það helst að segja, að upphaflega komst
Texas eins og Flórída, Kalifornía og fleiri landsvæði undir yfirráð
Spánverja og spænsk áhrif svo sem byggingarstíll, staðaheiti og
mannanöfn eru mjög útbreidd. Eftir að Mexíkó varð sjálfstætt ríki
í byrjun 19. aldar fylgdu syðstu hlutar núverandi Bandaríkja með í
yfirráðasvæði þeirra og þar á meðal Texas, sem árið 1827 var gert
að sérstöku fylki í Mexíkó. En á sama tíma var byrjaður talsverður
innflutningur fólks frá Bandaríkjunum inn í landið og þessir inn-
flytjendur að norðan undu yfirráðum Mexíkómanna afar illa.
Hófu þeir að lokum uppreisn, gjörsigruðu hersveitir Mexikómanna
1836 og lýstu Texas sem sjálfstætt og fullvalda ríki. Var landið gert
að lýðveldi, sem tók sér sérstakan fána, er í var ein stjarna. Þetta
einnar stjörnu ríki varð þó ekki langlíft, því að níu árum síðar eða
1845 sameinaðist það Bandaríkjunum. Sú ákvörðun leiddi til
styrjaldar milli Bandaríkjanna og Mexíkó, er lyktaði með sigri
Bandaríkjamanna 1848, sem eignuðust þá allt land norðan Ríó
Grande árinnar, þar sem landamæri Mexíkó og Texas liggja enn í
dag. Texas tók sér stöðu meðal Suðurríkjanna á tímum þræla-
stríðsins og varð þá að láta í minni pokann um síðir og virtust
endurminningar frá þeirri baráttu enn í fersku minni hjá fjölda
fólks í landinu. íbúum landsins tók að fjölga verulega eftir að olía
fannst í jörðu og ýmis stóriðja kom til sögunnar. Texas er afar
Goðasteinn
67