Goðasteinn - 01.06.1986, Page 68
ljósadýrð heimsborgarinnar miklu, New York, áður en við lentum
á Kennedyvellinum heilu og höldnu. Við áttum bókað far með
bandarísku félagi frá New York til Dallas í Texas, en sakir seinkunar
í Keflavík var það mjög tvísýnt hvort við næðum þeirri flugvél.
Jafnskjótt og við komumst inn i flugstöðina á Kennedyflugvelli
leituðum við uppi afgreiðslu A.A. flugfélagsins, sem við áttum að
fljúga með áfram. Þar sagði fólk okkur að vél okkar væri alveg á
förum, tók farangurinn af okkur og bað okkur að hafa hraðann á.
Utan flugstöðvarinnar komumst við í skyndi með áætlunarbíl til
brottfararstöðvar okkar flugfélags og náðum á síðustu mínútu inn
í þotu þá, sem við áttum að fara með.
Hófst nú von bráðar næturflug suður og vestur yfir Bandaríkin
og segir ekki af þeirri ferð fyrr en við lentum nokkrum klukku-
stundum siðar í Dallas í Texas, þar sem allmargir ágætir Rotary-
menn og væntanlegir gestgjafar okkar höfðu beðið okkar lengi.
Talsvert var líka komið fram yfir miðnætti á klukku þarlendra
manna, sem þó er sex stundum á eftir klukkunni okkar heima. En
þar sem við vorum þarna á flugvellinum við Dallas kom brátt í ljós
að farangur sumra okkar skilaði sér ekki með sömu vél og við
komum með, en hafði lent á einhverjum villigötum í öllum þeim
hraða sem hafði verið á hlutunum í New York. Urðu menn að
vonum nokkuð áhyggjufullir yfir þessu, en allt fór þó vel, þvi að
umræddar töskur skiluðu sér þegar næsta dag í áfangastað. Við
héldum brátt heim með gestgjöfum okkar og sváfum það sem eftir
lifði nætur, enda orðnir hvíldinni fegnir eftir langa og viðburðaríka
flugferð.
En þá vorum við komnir til fyrirheitna landsins, sem vera skyldi
heimkynni okkar næstu sex vikur. Texas er eitt af 50 fylkjum
Bandaríkjanna og það næststærsta þeirra að flatarmáli. Lengi vel
var þó Texas stærst, en svo bættist Alaska við i ríkjasamfélagið og
reyndist hafa yfir meira landi að ráða. Texas er þó tæplega 700
þúsund ferkílómetrar að flatarmáli og íbúafjöldinn er um 12
milljónir. Stærstu borgirnar er Houston með um 1,2 milljón manna
og Dallas með um 800 þúsund. Höfuðborgin er Austin og er hún
allmiklu minni eða með um 300 þúsund íbúa. En við komum ekki
66
Goðasteinn