Úrval - 01.02.1981, Page 36

Úrval - 01.02.1981, Page 36
34 URVAL þeirri fullkomnun, sem þau búa yfir. Meðal margra listmálara á þessum tíma, sem töldu sig hafa sótt eitthvað til íkonlistarinnar, varHenri Matisse. Það fer ekki hjá því, að það háa verð, sem nú á dögum fæst fyriríkon, freisti falsara. Sum fölsuð íkon eru svo fullkomin, að þau hafa hafnað í virtum einkasöfnum. Snjallir falsarar geta unnið tré þannig að það virðist gamalt, og þeir geta meðhöndlað málninguna þannig að hún gæti allt eins verið margra alda gömul. Þeir geta einnig blettað málninguna þannig að menn halda það óhrein- indi liðinna alda. I Sovétríkjunum á hinn aukni áhugi á íkonum sinn þátt í trúarlegri vakningu þar um slóðir. 5. júlí ár hvert er farið með mynd af heilögum Serge út í garðinn umhverfis klaustrið í Tsagorsk, sem kennt er við hann. Þegar ég heimsótti klaustrið nýlega var sem hið dýrlega íkon, skreytt böndum og villtum blómum, sygi til sín sólarljósið, sem annars var í felum bak við skýin. Rússneskar ömmur með sínar sígildu skuplur, ungar konur, gamlir karlar og ungir, hópuðust í kringum íkonið til þess að kyssa það. Meðan ég stóð og virti þetta fyrir mér, skildi ég, hvers vegna íkonin eru svona lifandi og hafa svona mikið aðdráttarafl, ekki aðeins í uppboðssölunum. Sérhver með tvö augu og hjarta á réttum stað hlýtur að skynja, hvernig þessar fögru myndir mynda brú til æðstu og fegurstu and legra krafta mannsins. ★ Leikkonan Irene Wort segir svo: „Áhorfandinn á rétt á eftirvæntingu eins og barn sem er í leikhúsi í fyrsta sinn. Ég þekki lítinn dreng sem fyrir skömmu sá Pétur Pan. Þegar leiknum var lokið sagði hann: ,,Ö, tjald, tjald, ekki dragast fyrir!” Þannig á leikhúsið að vera.” Dag nokkurn, er ég kom heim, fann ég miða frá fjórtán ára dóttur minni, á honum stóð: ,,Kæra mamma! Líttu inn í þakaraofninn.” I ofninum var annar miði og honum stóð: ,,Er hann ekki hreinn og fallegur? Farðu nú fram á bað! Margir fleiri miðar voru hér og þar um húsið sem allir höfðu samskonar boðskap að flytja mér. Að lokum rakst ég á miða á rúminu mínu og á honum stóð: ,,Bestu kveðjur vil minnar góðu mömmu.” Til að standa ekki systur sinni að baki hafði sjö ára dóttir mín einnig skrifað miða til mín sem hún hafði lagt á náttborðið. Þar stóð: ,,Kæra mamma, herbergið mitt er allt í drasli. Ég skal taka til á morgun!” — B. B.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.