Úrval - 01.02.1981, Qupperneq 61

Úrval - 01.02.1981, Qupperneq 61
SVIPMYNDIR FRÁ SOVÉTRÍKJUNUM Y> höfðu einangrast mjög, var skoðun þeirra á ástandinu í Sovétríkjunum ekki alltaf sú rétta. Rétti maðurinn til þess að ræða þetta við var ,,Alec”. Við höfðum búið á sama gangi á stúdenta- garðinum, þegar ég var í Mosku- háskóla árið 1962. I þá daga hafði hann verið grannvaxinn sveita- drengur, en þrátt fyrir það að hann hefði bæði hækkað og breikkað hafði hann ekki losnað við alþýðlegt yfír- bragð sitt. Alec hafði orðið þekktur blaðamaður, og síðar, þegar við hittumst og þá oftast í Blaðamanna- húsinu, héldum við áfram að stríða hvor öðrum á svipaðan hátt og við höfðum gert á skólaárunum. Viðræð- ur okkar og stríðni byggðust á gmnd- vallarskoðanamun okkar, þar sem Alec var sannur kommúnisti. Hvenær svo sem hann sá eitthvað sem ekki var eins og það átti að vera í landinu, taldi hann að ekkert nema sóslalism- inn gæti breytt þvl til hins betra. Þegar ég nú hringdi í Alec í þetta skipti vildi hann strax hitta mig. í fyrsta skipti í næstum tuttugu ár sagði hann samt enga brandara. Hann talaði um glataða trú og áhyggjur af framtíð Sovétríkjanna og um algjöra siðgæðis-,,kollsteypu’ ’. „Fólk reynir ekki að berjast gegn hugmyndum kommúnismans,” sagði hann. „Annað og verra er uppi á teningnum — það hlær að þeim. í síðasta mánuði heimsótti ég tíunda bekk, sem var í bókmenntatíma. Kennarinn vitnaði í orð Maxjms Gorkis, sem voru vön að hafa mikil áhrif á mig: I sósíalisku þjóðfélagi lifir fólk á þann veg að hjarta þess og sál verður öllum sýnileg. Nemend- urnir tóku þessa „trúarjátningu” sem brandara.” Ég hélt áfram að kanna hugarfar fólksins í Sovétríkjunum, og alls staðar urðu á vegi mínum vonbrigði og gremja. Menntamennirnir höfðu fyrir löngu verið farnir að óttast einræðisstjórnina. Nú var svo komið að hver einasti hvítflibbamaður jafnt sem erfíðisvinnumaður sem ég talaði við, lét í ljós óánægju og reiði. Verst féll þeim að þeim skyldi ekki takast að tryggja það sem þeir kölluðu bærileg lífskjör fyrir sig og sína. Þegar ég heimsótti fjölskyldu eina í nýrri íbúð, sem hún bjó í, ætlaði fólkið aldrei að geta hætt að kvarta undan verðbólgunni, vörusvikunum og vöruskortinum almennt, og því að hafa nú fyrir fullt og allt glatað tækifærinu til þess að komast út úr fátæktinni áður en það dæi. Sérhver Rússi sem ég talaði við að ráði var sannfærður um, að ástandið væri slæmt núna — og færi stöðugt versnandi. ,,Allir eru dauðþreyttir og uppgefnir,” sagði maður nokkur, sem hafði vikið sér kurteislega að mér og spurt hvort hann mætti ekki kaupa buxurnar mínar. ,,En eftir ríu ár munum við líta til baka með velþóknun til þessa tímabils. Ég er framkvæmdastjóri verslunarkeðju, og ég veit að ekkert nema hrun er fram- undan.”
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.