Úrval - 01.02.1981, Page 81

Úrval - 01.02.1981, Page 81
HIN GÖFUGA LEITBÚDDA 79 stöðugt niður í andlegar hugleiðingar. Búdda fann til sterkra tengsla við hin villtu dýr. Sagan segir að api hafi fært honum hunangsvaxköku og eitraður snákur hafi hjúfrað sig niður í betliskál hans. Þó að Búdda hafi ekki verið grænmetisæta, var hann á móti hindúíska helgisiðnum að fórna dýrum. Drykkjarvatn sitt úr upp- sprettum og ám síaði hann, og bauð munkum sínum að gera slíkt hið sama, til þess að forðast það að þeir innbyrtu örsmáar vatnalífverur um leið og þeir drukku. Þegar afbrýði- samt skyldmenni Búdda sleppti drápsfíl lausum til höfuðs Búdda, mætti Búdda fílnum óvarinn með öllu og með mildri rödd sinni tókst honum að róa dýrið. Það er engin furða þótt Búdda væri í augum samtíðarmanna sinna yfirnáttúrleg vera. Búdda lagði upp í lokaferð sína þegar hann var áttræður. Þar sem hann gekk yfir sléttur Indlands, stansaði hann í afskekktum þorpum og prédikaði yfir íbúunum. Mörg voru augun sem fylgdu honum eftir — visinn fetðalangur með sólhfif og betliskál, en samt sem áður hreinn og sannur prins. Góðhjartaður járn- smiður sem átti mangótrjálund þar sem Búdda hvíldist, færði honum máltíð. Eftir máltíðina varð Búdda altekinn kvölum og innri blæðing- um. Hann staulaðist áfram til Kusinara (í dag Kasia) og þar bað hann hinn trygga fylgdarmann sinn Ananda að útbúa sér beð milli tveggja trjáa. Þegar Búdda lagðist fyrir á hægri hliðina undir trjánum, en helgisagan segir að trén hafi verið í blóma þrátt fyrir það að blómsturtímabilið hafi verið á enda, glampaði líkami hans eins og hann væri úr fægðu gulli. Hann skipaði einum liðsmanna sinna, sem hafði staðið yfir honum og reynt að svala honum með blævæng, að færa sig frá svo hann mætti betur sjá himnesku herskarana sem nálguðust til að bjóða hann velkom- inn. „Reynið af fullri einlægni!” sagði hann — og andi hans leið inn í Nirvana. I Kasia, í helgidómi á grösugum stað þar sem aldnir og gáfaðir apar halda til, þar liggur 6 metra löng vera, hinn sofandi Búdda, hulin gulli upp að hálsi. Þarna skilja pílagrímar eftir litla, ferska blómvendi. Friður ríkir á þessum síðasta viðkomustað Búdda á leið hans — friður vonarinnar sem rættist. ★ Maður staddur í sjávarréttaverslun virti fyrir sér tvær tunnur sem stóðu hlið við hlið. I annarri kostaði humarinn 3 dollara en í hinni 4. Meðan hann virti tunnurnar fyrir sér sá hann hvar humar skreið upp úr 3 dollara tunnunni og lét sig detta niður í hina dýrari. ,,Æjá,” dæsti maðurinn, „Svona skeður baraí Ameríku.” —R. K.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.