Úrval - 01.02.1981, Síða 90

Úrval - 01.02.1981, Síða 90
88 alóeblómin voru sprungin út allt umhverfis hana. Fram að þessu hafði hún notið þess að gæta hvíta bamsins, verið stolt af því hve hænt það var að henni. En nú kom allt fyrir ekki, kitlandi hlátur þess og barnaleg skrípilæti, sem hún tók venjulega þátt í með glöðu sinni, nístu nú hjarta hennar eins og það hefði verið lagt með assegai. Við sólarlag hittust þau eins og venjulega, hún á leið heim, Sétanka að smala fénu inn um þröngt tréhliðið. Lautin sem var fundar- staður þeirra lá fram undan tungu þar sem sléttunni hallaði snögglega og þröngur dalur myndaðist í sólbakað umhverfið. Þennan stað hafði drengurinn fundið dag nokkurn er hann var að leita að týndu lambi. Hvomgt sagði orð er fundum þeirra bara saman en geislaflóð hníg- andi sólar skaut roðagullnum bjarma yflr þau og allt um kring. Seinna sagði hún honum ríðindin. Angistar- svipur færðist yfir andlit hans. Svo varð hann reiður. ,,Þegar Móletúe hlær hneggjar hann eins og hýena,” sagði hann hæðnislega. Hve karlmannlegur hann er, þegar hann er reiður, hugsaði hún. ,,Þar að auki er hann eyrnasnepla- laus eins og kona.” ,,Eg valdi hann ekki,” sagði Kísúení vesaldarlega. ,,En hann getur reitt fram hátt lobola. Hann er fjáður maður.” Það var fyrirlitning í röddinni. ÚRVAL ,,Ekki fæ ég gripina,” svaraði hún snöggt. Það glampaði á hvítar tennurnar í svörtu andliti drengsins, sem' nú var roðasvart af ástríðu, reiði, vanmætti og sárindum; allt þetta vall saman í einn farveg: Hví refsar hann mér með tungu sinni, hugsaði hún. Hún var líka vanmáttug, vissi að hún gat ekkert gert. Foreldrar hennar höfðu afráðið þetta. Vitaskuld varð hún að hlýða. Samt. . . ,,Við getum strokið,” sagði Sétanka biðjandi. Hvert?” spurði Kísúení, en vonaði samt að einhver leið væri þeim fær. ,,Til borgarinnar.” Vonarneisti hennar slokknaði áður en henni vannst rími til að ylja sér við hann. ,,Sonur ’Mkósa fór fyrir tveimur árum, og nú er sagt að hann vinni á undursamlegum stað þar sem vélar vinna og búa til skó á fólk. Geturðu ímyndað þér? Langar þig ekki að sjá það?Oggangaí skóm ? ’ ’ Það langaði Kísúení ekki. Það væri eins og refsing fyrir hana að þurfa að fjötra fæturna í skóm. Þar að auki trúði hún því ekki að vélar byggju til skó. Sétanka var bara að spinna þetta upp til að koma henni til að strjúka úr ættarbyggðinni. Og ef þau nú færu til borgarinnar, hvað áttu þau að gera þar? I framandi heimi hvíta mannsins? Henni hraus hugur við því. Maður verður að hylja líkama
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.