Upp í vindinn - 01.05.2007, Síða 6
... Upp í vindinn
Umhverfis- og
Byggingarverkfræðiskor
á Tímamótum
Umhverfis- og byggingarverkfræðiskor Háskóla íslands stendur á tímamótum. Frá upphafi hefur
skorin lagt áherslu á fyrrihluta eða grunnnám í verkfræði. í dag stendur til að stórefla framhaldsnám
og rannsóknir við skorina til að ná því metnaðarfullu markmiði sem Háskóli íslands hefur sett sér um
að skipa sess meðal bestu háskóla heims. Þessi grein fjallar um þær breytingar sem standa yfir innan
skorarinnar og verkfræðideildar.
Söguágrip
Upphaf verkfræðináms á íslandi má
rekja til vetursins 1940. Þá flutti
Háskóli íslands í nýbyggða aðalbygg-
ingu og kennsla til tveggja ára
fyrrihlutaprófs í byggingar-, véla- og
rafmagnsverkfræðihófst.Verkfræði-
deild Háskóla íslands var síðan form-
lega stofnuð 4 árum síðar. Fullt fjög-
urra ára grunnnám í verkfræði var
hleypt af stokkum árið 1970 með
lokaprófgráðunni candidatus
scientiarum C.S. Verkfræðinámið
var endurskipulagt árið 1998 í
þriggja ára B.S. og tveggja ára meist-
aranám (M.S) til að samræmast
erlendum háskólum og greiða göt-
una fyrir möguleikum á skiptinámi
innan Evrópu. Frá upphafi til ársloka
2006, hefur umhverfis- og bygging-
arverkfræðiskor brautskráð 450
nemendur með C.S. eða B.S. próf,
og yfir þrjá tugi með meistarapróf.
Fyrrverandi nemendur skorarinnar
eru í forystusveit öflugs íslensks
atvinnulífs.
Á árinu 2005-2006 fór fram mikil
stefnumótun innan allra deilda og
skora Háskóla íslands. Upp úr þessu
starfi hefur Háskóli íslands sett sér
það langtíma markmið að vera á
meðal 100 bestu háskóla í heimi til að þjóna sem best
íslensku samfélagi. Stoðirnar á bak við þetta markmið eru
þrjár: Framúrskarandi rannsóknir, framúrskarandi kennsla,
og framúrskarandi stjórnun og stoðkennsla. í dag keppast
skorir og deildir háskólans við að framfylgja þessari stefnu.
Hér að neðan er lýst nánar vinnunni og breytingunum sem
fara fram innan umhverfis- og byggingarverkfræðiskorar.
Framúrskarandi rannsóknir
Stórefling rannsókna er forsenda þess að Háskóli íslands
skipi sess meðal fremstu háskóla heims. Grundvöllur
aukinna rannsókna er framboð meistaranáms og sér í lagi
öflugs doktorsnáms. Doktorsnám við umhverfis- og
byggingarverkfræðiskor er þriggja ára nám þar sem
a.m.k. tvö ár eru helguð rann-
sóknum. Þessi langi rannsóknatími
gerir kleift að stunda hágæðarann-
sóknir sem leiða til birtingar í virtum
alþjóðlegum ritrýndum tímaritum.
Nemendum býðst færi á að sækja
alþjóðlegar ráðstefnur og hasla sér
völl innan alþjóðlegs vísindaheims.
Doktorsnám veitir sterkan almenn-
an grunn sem nýtist út fyrir umgjörð
háskóla og rannsókna, sem sést
greiðlega á velgengni doktora í bönk-
um, verkfræðiskrifstofum og öðrum
vettvangi.
Umhverfis- og byggingarverk-
fræðiskor Háskóla íslands býður
uppá fjölbreyttar rannsóknir á marg-
víslegum sviðum. Hér má nefna: Afl-
fræði, vatna- og straumfræði, jarð-
tækni, umhverfisverkfræði, sam-
göngutækni, framkvæmdafræði,
hönnun burðarvikja, fráveitu og
sorphirðumál, vind-, snjó- og jarð-
skjálftaverkfræði, vega- og flug-
brautagerð, og skipulagsfræði. Sér-
staða framhaldsnáms við skorina er
m.a. möguleikinn á að vinna að
rannsóknum sem miðast við sér-
íslenskar þarfir og aðstæður í nánum
tengslum við fyrirtæki í atvinnulífinu.
Starfsmenn skorarinnar hafa
doktorspróf frá virtum háskólum erlendis og hafa birt
fjölda greina.og fræðibóka á sínum sérsviðum.
Samstarf við stofnanir og fyrirtæki
Skorin mun fylgja sinni sterku hefð að skilgreina rann-
sóknaverkefni í nánu samstarfi við fyrirtæki úr atvinnulífinu
og aðrar mennta- og rannsóknastofnanir. Með tilkomu
öflugs framhaldsnáms í umhverfis- og byggingarverkfræði
opnast nýir spennandi möguleikar í íslensku atvinnulífi,
þar sem meistara- og doktorsnemar vinna að langvarandi
rannsóknum sem tengjast þörfum þjóðfélagsins. Samstarf
háskólans og fyrirtækja leiðir til markvissar uppbyggingar
nýrrar þekkingar, sjálfbærrar tækniþróunar og bættrar
samkeppnisaðstöðu íslensks atvinnulífs. Umhverfis- og
byggingarverkfræðiskor býður öllum áhugsömum
Hrund Ólöf Andradóttir
Dósent í umhverfisverkfræði
Bjarni Bessason
Prófessor og Formaður umhverfis- og
byggingarverkfræðiskorar
6