Upp í vindinn - 01.05.2007, Side 34
... Upp í vindinn
Verkfræðingar
- Ijósmæður arkítektúrs?
Dr.Sigurður Gunnarsson
Lauk verkfræðiprófi frá Háskóla íslands 1993 og Dr.-lng.
frá TU-Darmstadt 1998.
Fyrri störf:
Kennsla við Staedel Frankfurt am Main síðan 2002. Kennsla
við Listaháskóla Islands síðan 2006.
Núverandi starf:
Almenna Verkfræðistofan h.f.
Verkfræðingar eru ijósmæður. Oftast varlega, stundum
skorinort fylgja þeir hugsjónum og draummyndum
arkitekta til hríðarverkjaverkja verkteikninga og vökustunda
uppsteypunnar. Þeir eru til staðar á mörkum draums og
dags.
mannvirkinu sjálfu er verkfræðingurinn einnig að kynnast
arkitektinum, þetta á sér í lagi við ef um fyrstu fæðingu er
að ræða. Verkefnið er gaumgæft að utan og innan.
Þetta eru tvíburar, með skýrar
útlínur, virðist að mestu jafnt
á með þeim komið, mismunur
helst I smáatriðum.
að utan og innan
Vika 0-12: Byrjun. Fyrir utan það „að það er þarna
eitthvað" er allt annað óljóst. Fósturvísirinn er enn varinn
ytri áhrifum en móðirin líður á þessu tímabili oft fyrir
ógleði og uppköst.
í byrjun þegar allt er á hreyfingu, fyrirkomulag í
deiliskipulagi, minnismerki eða hógværð, rýmisskipun og
afbrigði grunnmynda eru enn spurningar og ekki teikning.
Hér hefst mæðraeftirlit verkfræðingsins. Burtséð frá
Vika 13-24: Miðbik. Byrjunarerfiðleikar eru nú (oftast) að
baki. „hver er á leiðinni" verður Ijósar og þróunin, jöfn og
hröð, sýnir sífellt skýrari ummynd.
Hringiða hins upphaflega hugmyndaflæðis og spurninga
er orðin þéttari. Enn eru nokkrir möguleikar til staðar enn
það verður sífellt Ijósar hvert ferðinni er heitið.
Vika 25-40 Lokasprettur. í stað gleðinnar er nú allt orðið
erfitt og flókið. Mann langar „bara að klára þetta" og
hver dagur að auki er einum um of. Óttinn við fæðinguna
verður skynjanlegri og maður vonar að losna við erfiðleika.
Vonandi er fæðingarstöðin ekki yfirfull og vonandi er
gjörgæslan sæmilega afslöppuð.
Málið er Ijóst, nú þarf að skila niðurstöðum og
verðmiðum. Tíminn verður knappur, raddirnar stundum
pirraðar. Maður ræðir við verktaka og reynir við opnun og
lestur tilboða að tryggja að þeir hafi skilið allt rétt og séu
meðvitaðir hvaða aðalatriði eru í húfi. Maður vonar að
samningar takist vel og að verkhraði leyfi sem gallaminnst
vinnubrögð.
Auðvitað komu og koma börn í heiminn án Ijósmæðra
og einnig hafa mannvirki risið án verkfræðinga (og jafnvel
án arkitekta). Ef arkitektar leyfa að aðrir taki þátt í
hönnunarferlinu verður niðurstaðan yfirleitt margþættari
34