Upp í vindinn - 01.05.2007, Síða 40

Upp í vindinn - 01.05.2007, Síða 40
... Upp í vindinn Tengjast hljóðvist og vellíðan? Inngangur Eftir því sem samskipti manna verða hraðari og þjóðfélagið hraðgengara, ræða menn meira um heilsu og vellíðan. Við erum flest meðvituð um líkamlega heilsu en því miður erum við oft ekki meðvituð um það andlega og líkamlega álag sem við verðum fyrir, t.d. vegna hávaða og þar með talið bakgrunnshávaða. Oft er það ekki fyrr en hávaðanum linnir að við verðum vör við að hann dundi yfir. Sem dæmi má nefna þegar skrifstofumaðurinn slekkur á tölvunni og allt verður hljótt, eða þegar slökkt er á útvarpinu eftir fréttir. Öll erum við þó ólík hvað þetta varðar og misjafnlega við- kvæm. Það ber að hafa í huga við lestur þessarar greinar. Hljóðvist - hugtök og skilgreiningar Mikilvægt er að útskýra nokkur af grunnhugtökum hljóð- fræðinnar. Hávaði er skilgreindur sem óæskileg eða skað- leg hljóð. Þannig telst t.d. umferðarniður og hljóð frá loftræsikerfum vera hávaði. Hljóðstig er lýsandi fyrir þann hljóðstyrk sem við verðum fyrir, hvort sem um hávaða eða hljóð er að ræða. Kvarðinn sem notaður er fyrir hljóðstig er lógaritmískur og er mælieiningin dB (lesið desibel). Hugtakið lógaritmískur merkir m.a. að breytingar á hljóð- styrk eru mun meiri en tölurnar gefa hugmynd um. Þetta kann að valda nokkrum heilabrotum. Til útskýringar má nefna að syngi tveir söngvarar með hljóðstigið 60 dB hvor, þá er samanlagt hljóðstig frá þeim 3 dB hærra eða 63 dB. Samanlagt hljóðstig frá fjórum slíkum söngvurum er 66 dB. Maður skynjar hækkun á hljóðstigi um 10 dB (t.d. úr 50 dB í 60 dB) sem tvöföldun hávaðans. Þannig getur munað töluverðu í skynjuðum hljóðstyrk þótt aðeins sé um nokkur dB að ræða. Ómtími er það sem í daglegu tali er oft nefnt "bergmál" (þegar ómtíminn er langur). Sagt er að rými með löngum ómtíma sé "hljómmikið". Fræðileg skilgreining ómtíma er sá tími sem það tekur hljóðstig að falla um 60 dB, þ.e. frá því að hljóðgjafi þagnar. Ómtími hefur bein áhrif á hljóðstig í rýmum. Þannig má minnka stöðugan hávaða frá t.d. loftræsikerfi með því einu að stytta ómtímann í rýminu (t.d. eru 40 dB í rými með 1,2 sek. ómtíma aðeins 36 dB í rými með 0,5 sek. ómtíma). Áhrifin á talað mál eru mun meiri eins og komið verður að síðar. Það sem einna helst hefur áhrif á ómtímalengd rýmis eru efniseigin- leikar innanstokksmuna, gólfefnis, veggja og loftaefnis. Rúmtak rýmis (lofthæð og gólfflötur) hefur einnig mikil áhrif. Hve langur er viðunandi ómtími? Reynslan sýnir að æskileg lengd ómtíma tekur mjög svo mið af notkun rýmisins. Hér leikur stærð rýma einnig stórt hlutverk þar sem mannsheilinn gerir ráð fyrir lengri ómtíma í rúmtaksmeiri rýmum, þá sérstaklega rýmum þar sem hátt er til lofts. Benda má á að ómtími er tíðniháður (lágtíðni - miðtíðni - hátíðni) og er ákaflega mikilvægt að ómtími sé u.þ.b. jafn langur fyrir öll tíðnibönd hljóða á bilinu 125 - 4.000 rið (hljóðsveiflur á sek.). Líkamleg áhrif - viðbrögð líkamans Þegar talað er hátt beitum við rödd okkar á annan hátt en þegar við tölum lágt. Þannig hefur bakgrunnshávaði og ómtími rýma m.a. áhrif á raddbeitingu okkar og skiljan- leika talaðs máls. í lítið hljóðdeyfðu rými getur talað mál orðið að lítt skiljanlegum graut, jafnvel þótt aðeins einn einstaklingur sé að tala. Þegar talað er í slíku rými getur endurkast eins atkvæðis endurkastast að eyra mælanda um leið og annað atkvæði er mælt fram. Fyrstu atkvæði orða munu þvi draga verulega úr skiljanleika seinni atkvæða (2). Viðbrögð manna eru þau að sérhver einstakl- ingur hækkar róminn til að yfirgnæfa bakgrunnshávaðann og/eða hljóðendurkast eigin raddar. Þetta er oft nefnt kaffihúsaáhrif, þar sem síhækkandi kliður veldur því að allir tala hærra og hærra. Fyrir vikið fer mýkt úr röddum einstaklinga og hún verkar harðneskjulegri á hlustanda. Röddin er okkar helsta tjáskiptaform og gegnir lykilhlutverki í kennslu og þegar leiðbeiningar eru gefnar, t.d. í jóga. Þannig getur góð hljóðvist gert herslumuninn fyrir góða slökun eða árangur kennslu, þ.e. hvort leiðbeinandinn talar með mjúkri rödd eða ekki. Stað- setning hátalara getur einnig haft áhrif á líðan þátttakanda, t.d. í slökun, kennslu eða líkamsrækt. Þegar um slökun ræðir er jafnan best að tónlist komi að ofan, aftan eða framan, svo að annað eyrað verði ekki fyrir meiri áraun en hitt. f rýmum með löngum ómtíma (e.t.v. > 0,8 sek.) dregur verulega úr talskilningi. Þetta hefur — Ólafur Daníelsson Hljóðráðgjafi hjá Línuhönnun hf. Hann lauk B.S.-prófi í umhverfis- og bygging- arverkfræði frá Háskóla íslands 2003. Ólafur stundaði framhaldsnám við Há- skóla (slands og skiptinám við DTU í Kaupmannahöfn og lauk meistaraprófi í byggingarverkfræði frá HÍ 2005. 40
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Upp í vindinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.