Upp í vindinn - 01.05.2007, Side 47

Upp í vindinn - 01.05.2007, Side 47
... Upp í vindinn haf hefur nú verið forhannaður og er deilihönnun um það bil að hefjast. Umfang framkvæmdar Síðastliðið vor hófust undirbúnings- framkvæmdir vegna TR sem fólust m.a. í rifi á svo kölluðum Brokeyjar- húsum, Faxaskála, og bensínstöð Essó við Geirsgötu ásamt færslu lagna úr áhrifasvæði framkvæmdarinnar. Einn- ig fela undirbúningsframkvæmdirnar í sér byggingu brúar á Geirsgötu þann- ig að umferð gangandi vegfarenda geti gengið óhindrað undir Geirsgötu aðframkvæmdum loknum. Undirbún- ingsframkvæmdirnar eru samvinnu- verkefni Framkvæmdasviðs Reykjavfk- urborgar og ÍAV og er stærðargráða þeirra um 1.000 milljónir án vsk. Framkvæmdir við Tónlistar- og ráð- stefnuhúsið sjálft hófust sl. haust og er áætlað að þeim Ijúki í árslok 2009. Umfang þeirra er um 13.500 milljónir án vsk. Nú í vor munu síðan hefjast fram- kvæmdir við bílakjallara verkefnisins sem hýsa mun samtals um 1600 bíla. Bílakjallarinn mun teygja arma sína frá TR í norðri langleiðina að Lækjar- torgi í suðri. Áætlaður framkvæmda- kostnaður við hann eru rúmar 7.000 milljónir án vsk. í kjölfar bílakjallarans mun síðan verða hafist handa við aðrar bygging- ar á svæðinu s.s. hótel, verslanir, göngugötu, kvikmyndahús, íbúðir, spa og skrifstofuhúsnæði fyrir samtals um 15.000 milljónir án vsk. Einnig munu rísa á svæðinu sunnan Geirs- götu nýjar höfuðstöðvar Landsbanka íslands. Samtals mun því verða framkvæmt á svæðinu fyrir um 40 milljarða á næstu árum. Hægt er að fylgjast með fram- kvæmdunum á veraldarvefnum með vefmyndavél sem Portus hefur komið upp. Slóðirnareru www.portusgroup. is eða www.iav.is. Yfirlitsmynd af vinnusvæðinu í ársbyrjun 2007 Mynd Mbl Innrásin frá Mars? Mynd RAX Mbl LabVIEW 8 PDA Margverðlaunað forritunarmál sem styttir tíma og lækkar kostnað við hugbúnaðargerð. Nýtt: Útbúið hugbúnað fyrir lófatölvur með Palm OS, Windows Mobile fyrir Pocket-PC og margar gerðir af Windows-CE stýrikerfum. Nýtt: Breytið lófatölvu í mælitæki með DAQ spjaldi og LabVIEW. Hentugt fyrir rauntíma skjástýrikerfi. Við höldum námskeið í LabVIEW 8 PDA forritun www.vista.is l/ISM Verkfræðistofan Vista sími: 587 8889 ^WTNATIONAL INSTRUMENTS www.ni.com © 2002 National Instruments Corporation All rights reserved. Product and company names listed are trademarks or trade names of their respective companies 47

x

Upp í vindinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.