Upp í vindinn - 01.05.2007, Side 54
... Upp í vindinn
Þegar meta á almenna endingu og
áætla viðhaldsþörf þá þarf að vera
hægt að meta raunþörf framtíðar,
háð aðstæðum. í þessu skyni þarf
annaðhvort ending og viðhaldsþörf
byggingarefnis- eða byggingarhluta
að vera þekkt fyrir þær aðstæður
sem um ræðir, eða mögulegt að áætl-
að þetta útfrá efniseiginleikum, niður-
brotsferli og umhverfisáraun. Mikið
skortir enn á að þessu sé fullnægt,
hvor leiðin sem verður fyrir valinu. í
fyrra tilvikinu er einna auðveldast að
byggja á söfnun upplýsinga um raun-
endingu efna og byggingarhluta en
slík þekking hefur þá gjarnan mjög
staðbundna merkingu. í síðara tilvik-
inu er byggt á eðlis- og efnafræði-
legum forsendum sem krefst mjög
mikillar efnis- og umhverfisþekkingar,
þar sem tekið er tillit til innbyggðar
dreifingar efniseiginleika og flókinna
niðurbrotsferla sem mikið skortir enn
á að séu þekktir. í báðum tilvikum
þarf umhverfisáraunin að vera þekkt
svo meta megi framtíðarendingu, en
jafnframt má vænta þess að þessi
áraun eigi eftir að breytast m.a. sam-
fara breytingum í veðurfari. Til þess
að meta framtíðarendingu þarf í öllu
falli að byggja á staðgóðri þekkingu,
en augljóst að ekki er hægt að
krefjast mikillar nákvæmni í slíkri
áætlanagerð að svo stöddu. Leyfileg
óvissa í niðurstöðum fer vitaskuld
eftir því hvaða áhætta er tekin, en
iðulega felst áhættan mest í því hvort
sinna þurfi viðhaldi aðeins fyrr eða
síðar heldur en áætlað var og því
væntanlega um hóflega fjárhagslega
óvissu að ræða.
Rekstrarskeið
Á rekstrartímanum þarf eigandinn að
skipuleggja fyrir hagkvæmu viðhaldi
og endurnýjun, eða jafnvel geta tekið
rökstudda ákvörðun hvenær hag-
kvæmast er að selja eign í stað þess
að halda rekstri hennar áfram. Slík
ákvarðanataka mun væntanlega
byggjast á reynslu af rekstri umræddr-
ar byggingar og einnig af samanburði
við aðrar byggingar ef slíkar upplýs-
ingar eru í boði. í áætlanagerð fyrir
viðhald og endurnýjun þekkjast tvær
ólíkar leiðir;
• Mat á ástandi fæst með síendur-
teknumástandskönnunum,niður-
staða kannana gefur þá til kynna
hvert ástand byggingar er hverju
sinni. Byggtá þessu mati og þekk-
ingu á hrörnunarhraða er gerð
viðhaldsáætlun yfir hvaða við-
halds muni verða þörf á næstu
árum.
• í hönnunarvinnunni er gerð við-
haldsáætlun sem farið er eftir,
áætlunin síðan gjarnan endur-
skoðuð með aukinni reynslu af
byggingunni sem um ræðir. Þessi
aðferð er helst tíðkuð þegar
rekstraröryggi er svo mikilvægt
að það vegur þyngra heldur en
fjárhagslegt tap af því að hafa
viðhaldstíðni meiri heldur en ýtr-
asta raunþörf reynist vera.
Notandi í eigin húsnæði fer sennilega
fyrri leiðina a.m.k. þegar hann telur
sig taka litla áhættu með því, dæmi
um slíkt er almennt íbúðarhúsnæði í
einkaeign. Síðari aðferðin er algeng
varðandi hluti sem eru mikilvægir
fyrir rekstur fyrirtækja en hefur einnig
verið notuð af stórum fasteignaeig-
endum erlendis sem leigja út íbúðar-
húsnæði. í síðarnefnda tilvikinu hefur
iðulega komið í Ijós að þessi viðhalds-
háttur verður of dýr og þá valið að
sinna viðhaldi þegar þörf fyrir slíkt
greinist.
f hvoru tilvikinu sem er skiptir miklu
fyrir eigandann að haga viðhaldi og
endurnýjun þannig að efni- og vinna
nýtist sem best. Með aukinni reynslu
af byggingu þá safnast upplýsingar
um hrörnunarhraða og viðhaldsþörf,
og auðveldara verður að aðlaga við-
haldsáætlanir að aðstæðum hverju
sinni. Til þess að virk upplýsingasöfnun
eigi sér stað þá þarf eigandinn að
skrá hjá sér hvenærog hvaða viðhalds
var þörf hverju sinni (viðhaldsdag-
bók).
Sjálfbær bygging á eðli málsins
samkvæmt að hafa takmörkuð
óheppileg áhrif á umhverfið, sjálfbær
bygging er því einnig umhverfisvæn?
Það eru farnar að sjást merkingar
erlendis, t.d. Svans merkið (Nordisk
miljömárkning) sem sýna umfang
sviðsins og hvaða kröfur er verið að
skoða.
Svans merkið
• Markmið
Heildarsýn á framkvæmd, efni og
orkunotkun. Húsið skal hafa lítil
umhverfisáhrif og gott inniloft.
• Atriði sem skulu uppfyllt
Atriði er varða viðurkenningu
(merkingu, t.d. Svans merkið)
byggir á annarsvegar kröfum sem
skulu uppfylltar (skyldukröfur),
hinsvegar lágmarkseiningafjölda
úr öðrum þáttum (gæðakröfur).
Kröfurnar eru að hluta almennt
orðaðar markmiðssetningar, en
einnig talsvert nákvæmar kröfur,
sem gera þá mögulegt að mæla
árangur I vissum tilvikum.
Kröfur varðandi innra- og ytra
umhverfi;
- Inniloft:
Efni
Loftræsingu
Framkvæmd
Efnis- og gæðaeftirlit til að
komast hjá rakaskemmdum
- Ytra umhverfi:
Óholl efni bönnuð
Takmarka orkunotkun í rekstri
Byggingarúrgangi fargað á
réttan hátt
Rekstrar og viðhaldsáætlun
Það er athyglivert að í þessu gæða-
mati eru engar beinar kröfur um
lágmörkun efnisnotkunar, en slíkt
telst ef til vill til sjálfsagðrar og góðrar
venju í allri hönnun.
Það er augljóst af kröfunum sem
gerðar eru t.d. í Svans merkinu að
ætlast er til að a.m.k. verulegur hluti
af atriðunum sem fjallað er um að
framan koma inn í hönnun almennt
og gæðamat. Umfang á slíku hönn-
unarferli og gæðamati er mikið og
ekki vel skýrt hvernig hönnuður getur
tekið á þessu, auk þess sem erfitt
verður að meta hvort árangri sé náð.
Það er ósennilegt að hverju sinni
verði hægt að gæta að öllu, a.m.k.
nú í byrjun þegar lítið er til af upp-
lýsingum og forskriftum. Það er því
eðlilegt að skoða hér heildina og
kanna hvað skiptir mestu máli- og
auðvelda þannig hönnuðum að
greina aðalatriði frá aukaatriðum. í
þessum tilgangi þarf að skoða hvaða
kröfur þarf að uppfylla sérstaklega
fyrir ísland m.a. vegna veðurfars og
byggingaraðferða, en talsvert skortir
enn á í slíkri greiningu.
í textanum er byggt á
skýrslunni;
Björn Marteinsson (2006) Heildarsýn
á endingu, rekstur og viðhaldsþörf
bygginga, verkefni unnið í samvinnu
við Félagsbústaði og styrkt af íbúða-
lánasjóði, Rb skýrsla 06-07, Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðarins,
(38s+viðaukar)
54