Upp í vindinn - 01.05.2007, Qupperneq 64
... Upp i vindinn
Mikill ávinningur af miðlægri
stýringu umferðarljósa
Á undanförnum árum hefur ver-
ið unnið að undirbúningi sam-
tengingu umferðarljósa á höf-
uðborgarsvæðinu og miðlægri
stýringu þeirra, en verkefnið er
samstarfsverkefni Reykjavíkur-
borgar og Vegagerðarinnar.
í apríl verður lokið við upp-
setningu fyrsta áfanga verkefn-
isins þegar fyrstu 40 gatnamót-
in verða tengd stjórntölvu í hús-
næði Framkvæmdasviðs Reyk-
javíkur í Skúlatúni 2. Að loknu
þriggja mánaða prufukeyrslu-
tímabili verður kerfið tekið
formlega í notkun í lokjúní.
Þetta eru merk tímamót og
taka sumir svo djúpt í árinni að
verið sé að nútímavæða stjórn-
unumferðaríborginni.Verkefn-
ið bíður upp á marga spenn-
andi möguleika, en vonir stan-
da til að á árinu 2010 nái kerfið
til stýringar allra umferðarljósa
í Reykjavík.
Langþráður draumur
Langt er síðan að farið var að
ræða um miðlæga umferðar-
stýringu í Reykjavík, en segja
má að upphaf verkefnisins
megi rekja til ársins 2002 þegar
gerð var úttekt á vegum em-
bættis borgarverkfræðings á „ávinningi af því að besta still-
ingu umferðarljósa." Úttektin var unnin af breska ráð-
gjafafyrirtækinu TMS Consultancy og leiddi meðal annars í
Ijós töluverðan sparnað í ferðatíma, ef stilling umferðar-
Ijósanna væri sveigjanlegri en hún er í dag.
Samstarfsnefnd Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar
var skipuð á vormánuðum 2003. Árið 2004 réði nefndin
ráðgjafa frá dönsku verkfræðistofunni Hansen & Henne-
berg A/S til að vinna forskrift að kerfislýsingu og gerð út-
boðsgagna, en nefndin naut einnig ráðgjafar Vinnustof-
unnar Þverá. í júní 2005 var útboð auglýst á Evrópska efna-
hagssvæðinu og óskað eftir
tilboðum í stjórntölvu ásamt
3 útstöðvum og 30 stjórnkös-
sum umferðarljósa, sem
stjórna umferðarljósum á 36
gatnamótum í Reykjavík. Tvö
tilboð bárust og var tilboði
Siemens AG tekið, en það
hljóðaði upp á tæpar 900
þúsund evrur sem skiptist
milli Vegagerðar og Reykja-
víkurborgar. Þann 18. janúar
2006 var verksamningur
undirritaður og gert ráð fyrir
afhendingu búnaðar fyrir
árslok 2006. Gerður var
viðbótarsamningur um upp-
færslu á fjórum stjórnkössum
á vegum Vegagerðarinnar
við Hafnarfjarðarveg og
Breiðholtsbraut. Stjórnkassar
við Hafnarfjarðarveg munu
tengjast stjórntölvunni í þes-
sum áfanga.
Núverandi kerfi
Mikil þörf hefur verið fyrir
sveigjanlegt kerfi sem bíður
upp á skjót viðbrögð við sí-
breytilegum aðstæðum, en
núverandi kerfi er mjög óþjált
í rekstri og allar breytingar á
stýringum mjög tímafrekar.
Hluti stjórnkassanna var kominn til ára sinna og því
nauðsynlegt að uppfæra þá. Núverandi kerfi sendir held-
ur ekki tilkynningar um bilanir, en það hefur þrenns konar
afleiðingar í för með sér:
1) Ávallt líður einhver tími frá því að bilun verður og
þar til umsjónaraðilar vita um hana. Reglubundið
eftirlit hefur vissulega minnkað þessa töf, en getur
ekki komið í veg fyrir hana.
2) Tafsamt getur verið að staðsetja bilun, til dæmis ef
samstilling innan grænnar bylgju hættir að virka.
3) Endurstilling Ijósanna er tímafrek og ekki fram-
Baldvin E. Baldvinsson
verkfræðingur
Höskuldur Tryggvason
byggingartæknifræðingur
Kristján Helgason
upplýsingafulltrúi
Markmið með miðlægri stýringu umferðarljósa
• Kerfið safni umferðarupplýsingum sem
nýtast til að lágmarka umferðartafir við
mismunandi aðstæður.
• Stýring umferðarljósa samræmist umfer-
ðinni hverju sinni.
• Að kerfið sé vaktað og geri sjálfkrafa
viðvart ef bilanir koma upp.
• Að mögulegt sé að veita Strætó forgang.
64