Upp í vindinn - 01.05.2007, Page 78
... Upp í vindinn
Kínaferðin mikla
Útskriftarferð umhverfis- og
byggingarverkfræðinema 2006
Það hefur ávallt verið sterk hefð fyrir því að senda nýútskrifaða verkfræðinema út í heim til að skoða
sig um og kynnast öðrum menningarheimum. Við vorum þar engin undantekning og var ákveðið
að kynnast framandi menningu Asíu eða nánar tiltekið Kína og Tæland.
Kína
Peking
Þegar við lentum í Peking tók á móti okkur fararstjórinn
Gao Xing og stýrði hann stífri dagsskrá alveg fram að
komu okkar til Shanghai.
Innfæddir kátir með að ná mynd af fölbleikum frónbúa.
Fyrsti viðkomustaður í Peking var "torg hins himneska
friðar." Þar blasti við okkur stærðarinnar Ijósaskilti sem
telur niður ár, daga, mínútur og sekúndur þar til ólympíu-
leikarnir 2008 byrja en þeir verða haldnir þar það ár. Eru
því Kínverjar nú í óða önn að undirbúa fyrir ólympíu-
leikana með stærðarinnar og framúrstefnulegum íþróttar-
mannvirkjum. Innfæddir tóku vel á móti hópnum, í raun
svo vel að margir vildu láta taka mynd af sér með fölblei-
kum frónbúa. Vakti þetta mikla lukku bæði fyrir þá og
okkur. Seinna komumst við að því að margir Kínverjar eru
enn óvanir að sjá hvíta vesturlandabúa. Því eiga þeir oft
erfitt með að standast freistinguna með að ná góðri mynd
af einum slíkum.
Eftir skoðun á torginu lá leiðin beint yfir götuna til að
skoða "forboðnu borgina" en hún er talin vera ein
stærsta borgarhöll sem til er. Hún er með aðeins 8600
herbergjum sem ná yfir 720000 fm svæði sem er allt girt
af með 10m háum veggjum og 6m djúpum skurðum.
Seinna um daginn var farið í borgarskipulagsstofnun
Peking. Þar mátti sjá líkan af borginni og þeim íþrótta-
mannvirkjum sem Kínverjar eru að byggja fyrir ólympíu-
leikana. Einnig bauðst okkur 3d sýning sem sýnir fram-
tíðarskipulag borgarinnar.
Um kvöldið var farið í "The Beijing Opera". Þar sem
kínverskar sögur voru lífgaðar við með söng og dansi.
Þrátt fyrir mikið sjónarspil og mikla tilburði leikara þótti
mörgum mjög erfitt að halda sér vakandi eftir svona eril-
saman fyrsta dag.
Kínamúrinn var okkar næsta stopp. Þegar upp var kom-
ið tók tilkomumikil fjallasýn á móti okkur. Virtist múrinn
vera endalaus í báðar áttir og gerði maður sér þá fyrst
grein fyrir hversu mikið mannvirki þetta hefur verið og er.
Með reglulegu millibili eru varðturnar og á þeim eru
fjögur eldstæði. Var hægt með stuttum fyrirvara að vara
við óvinaherjum ásamt því að gefa til kynna stærð þeirra
með fjölda bálkesta. Til að komast niður af múrnum var
farið með kláfferjum (þeim sömu og farið var upp með)
eða með sleðum. Nokkrir úr hópnum fórum niður með
sleðunum og minnti upplifunin nokkuð á "cool runn-
ings".
Síðasta dag okkar í Peking var Sendiráð íslands heim-
sótt og tók hann Alex Nikulásson höfðinglega á móti okk-
ur. Hann kom með nokkrar staðreyndir um Kína og þeirra
menningu ásamt fleygri setningu. "Ifthey can make it we
can fake it" sem reyndist vera skemmtilega sönn þegar
líða tók á ferðina.
Xi'an
Xi'an hefur að geyma 8100 Terracotta leirhermenn. Talið
er að þeir hafi upphaflega verið gerðir til að verja grafhýsi
þáverandi keisara. Hann hefur ekki verið vinmargur þar
sem herinn er jú feiknastór og vel tækjum búinn til að
taka á móti hverju sem er. Einnig er vert að minnast á að
enginn af þeim er eins og það tók víst 40 ár að byggja
þennan leirher upp. Sumir hafa aldeilis verið forsjálir.
Ekki má gleyma því að hópurinn fór á safn um sögu Kína
þar sem hin síkáta Wan Chuen leiddi okkur um og fræddi.
Hún fór einnig með okkur í ævafornt múslimahof en
múslimar eru 1 % af þeim 7 milljónum sem búa í Xi'an.
78