Upp í vindinn - 01.05.2007, Page 80

Upp í vindinn - 01.05.2007, Page 80
... Upp í vindinn Mynd af hópnum fyrir ofan þriggja gljúfra stífluna Mynd: Óskar Gísli Sveinsson því hópurinn það og fékk að taka eitthvað af prófunum sem sálirnar áttu að ganga í gegnum. Eftir draugaborgina var kominn tími til að hitta "nöktu bændurna" sem greinilega hafa efnast eitthvað um ævina þar sem þeir voru fullklæddir þegar við mættum. Þeir drógu okkur í smábátum upp eftir giljum og dölum. Á leiðinni til baka tóku þeir sig til og sungu kínverska þjóðsöngva. Við borguðum að sjálfsögðu fyrir okkur í sömu mynt og leyfðum þeim að heyra nokkra vel valda íslenska. Síðustu nóttina fórum við í gegnum einn stærsta skipa- stiga heims, en hann er fimm þrepa og er heildar fall- hæðin 113m. Morguninn eftir tók Yifade nokkur á móti okkur en hann er menntaður rafmagnsverkfræðingur sem vinnur við stífluna. Þrátt fyrir litla enskukunnáttu tókst honum að útskýra fyrir okkur helstu þætti stíflunn- ar. Fórum um sýningarsvæðið og skoðuðum líkan af þessu gríðarlega mannvirki. Þegar virkjunin mun komast í fulla notkun mun hún hafa framleiðslugetu upp á 18200 MW en það eru 26 hverflar sem mynda þetta afl. Princess Elaine lagðist að Wu han en þaðan flugum við til Shang- hai og kvöddum fararstjórann okkar Gao Xing. Shanghai Shanghai er talin vera ein vestrænasta borg í Kína. Þar voru fleiri enskumælandi en við hingað til höfðum átt að venjast, einnig var þar meira um vestræna veitingastaði, sem var kærkomið fyrir okkur ferðalanganna. Fram að þessum tímapunkti í ferðinni hafði okkur í öll mál og all- staðar verið boðið upp á hefðbundinn kínverskan mat fyrir vestræna túrista en hann er víst ekki alveg eins bragðsterkur og innfæddir borða. Margt er að skoða í Shanghai og er borgin í mikilli upp- byggingu þar sem skýjakljúfar rísa eins og gorkúlur. Fyrir okkur verkfræðinema var ekki annað hægt en að upplifa það að fara upp í einn af stærstu turnum heims, Shang- hai Oriental Pearl Tower. Þar var hægt að fá góða yfirsýn yfir borgina og líta niður á iðandi mannlíf sem líktist helst vinnumaurum. Við kíktum örstutta stund á stærstu höfn í heimi Shang- hai Flarbour en þar eru venjulega ekki leyfðar skoðunar- ferðir, því stoppað stutt. Einn áhugaverðasti staðurinn í Shanghai er Xiang Yang flóamarkaðurinn þar sem sölumenn seldu einungis há- tísku merki svo sem Dior, Prada, Flugo Boss og Lacoste. Engar vörur voru þar verðmerktar og var því lögmál prútts- ins við líði þar sem harðsvíraðir íslenskir verkfræðinemar lærðu fljótt hversu lágt var hægt að fara og viku sér hvergi frá því. Það var í raun ótrúlegt hversu lágt sölumennirnir voru tilbúnir að fara með þessi gæða og "ekta" vörur. Nú sannað sig setning Alexar í Sendiráðinu um að "ifyou can make it we can fake it". Seinasta kvöldið kvöddum við ferðafélaga okkar og kennara hann Trausta Valsson og þökkuðum fyrir góða ferð. Var nú námstengda hluta ferðarinnar lokið og við margs róðari, en við tók afslöppunarferð til Tælands. Vígalegir verkfræðinemar tilbúnir að takast á við tælenska um- ferð. Mynd ÓGS 80

x

Upp í vindinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.