Upp í vindinn - 01.05.2014, Blaðsíða 50
SAMSETNING
SVIFRYKS í REYKJAVÍK
Páll Höskuldsson
Efnaverkfræöingur á
Umhverfissviöi EFLU
verkfræðistofu.
Veturinn 2013 gerði EFLA verkfræðistofa mælingar á samsetningu svifryks í Reykjavík. Verkefnið
var styrkt af rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar auk þess sem Reykjavíkurborg, Umhverfisstofnun og
Arngrímur Thorlacius frá Landbúnaðarháskóla islands veittu aðstoð við gerð verkefnisins. Tilgangurinn
var að greina samsetningu og uppsprettur svifryks í Reykjavík og kanna hvort markverðar breytingar
hafi orðið á samsetningu svifryksins frá því að sambærileg mæling var gerð fyrir 10 árum síðan. Vegna
skaðsemi svifryks fyrir heilsu fólks er unnið markvisst að því að draga úr myndun þess en þekking á
samsetningu og uppruna ryksins er mikilvægur liður í þeirri vinnu.
Svifryk (PM10) eru agnir sem eru minni en
10 míkrómetrar (jjm) að stærð og eiga greiða
leið ofan I öndunarfærin. Svifryksmengun er
ein af helstu ástæðum heilbrigðisvandans
sem rekja má til mengunar I borgum. Sett
hafa verið heilsuverndarmörk [1] fyrir svifryk
til að tryggja lágmarksáhrif á heilsu fólks.
Meðaltalssólarhringsstyrkur fyrir svifryk má
hæstur vera 50 pg/m3 og má styrkurinn fara að
hámarki 7 sinnum á ári yfir þessi mörk. Einnig
eru sett umhverfismörk fyrir ársmeðaltalsstyrk
svifryks sem má vera hæstur 20 pg/m3. Svifryk
er mælt reglulega í tveimur föstum mælistöðvum
í Reykjavík, á Grensásvegi og í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum, en eins og sjá má á mynd
1 hefur styrkur svifryks að jafnaði mælst yfir
heilsuverndarmörkum við Grensásveg en að
jafnaði undir mörkum í Húsdýragarðinum.
Almennt mælast hærri gildi við Grensásveg þar
sem meiri áhrifa umferðar gætir [2].
Uppruni svifryksins getur verið af ýmsum toga,
bæði náttúrulegum og mannlegum. Svifryk af
náttúrulegum orsökum er t.d. jarðvegur, sandur
og sjávarfok. Svifryk af mannlegum orsökum
er t.d. ryk frá bílaumferð sbr. sót, malbik,
bremsuborðar og salt af götum. Svifryksmengun
frá iðnaði og kyndingu húsa með viðarbrennslu
er einnig algeng en hennar gætir ekki í Reykjavík
þar sem mengandi iðnaður er fjarri og öll hús
kynt með jarðhitavatni. Eldri rannsóknir hafa
sýnt að stór hluti svifryksmengunar í Reykjavík á
uppruna sinn að rekja til umferðarinnar og að stór
áhrifaþáttur þar væri notkun nagladekkja. Á árinu
2003 var enn fremur unnin rannsókn á svifryki
undir ritstjórn Bryndísar Skúladóttur [3], en
niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að stærstan
hluta svifryks í Reykjavík megi rekja til slits á
götum. Samsetning vetrarsýna var að meðaltali:
malbik 55%, jarðvegur 25%, sót 7%, salt 11%
og bremsuborðar um 2%. Frá því að þessi
I ...upp í vindinn