Upp í vindinn - 01.05.2014, Page 73
STEINSTEYPUFÉLAG ÍSLANDS
j 5 S jj 88 ■ fiElflll
|i5|Si iii ■ ill ss|
Nýja bíó hlaut Steinsteypuverðlaunin 2013. Mynd: Sigurgeir Sigurjónsson
vegum Nýsköpunarmiðstöðvar íslands
og samstarfsaðila. Vikan, sem ber
nafnið „A CONCRETE WEEK“, hefst á
mánudegi með námskeiðahaldi á vegum
Nordic Concrete Federation og Nordic
Rheology Society. Á miðvikudeginum
13. ágúst hefst ráðstefnuhaldið svo
formlega með sameiginlegri setningu
ráðstefnanna þriggja í Eldborgarsal
Hörpu en þær eru: XXII Nordlc
Concrete Research Symposium sem er
samvinnuverkefni Steinsteypufélaganna
á Norðurlöndum og er haldin árlega í
einu Norðurlandanna. The 23rd Nordic
Rheology Conference er haldin á vegum
Norræna flotfræðisambandsins (Nordic
Rheology Society) en hún var síðast
haldin á íslandi árið 2009 og ECO-
CRETE, International Symposium on
Sustainability er sú fyrsta í sinni röð
og er haldin i samvinnu við RILEM.
Steinsteypufélagið hvetur alla íslenska
fræði- og áhugamenn um steinsteypu
til að senda inn greinar á ráðstefnuna
til að kynna íslensk steinsteypufræði
og framkvæmdir fyrir erlendum gestum
ráðstefnunnar. Nánari upplýsingar má
nálgast á heimasíðu ráðstefnunnar www.
rheo.is.
Eitt af markmiðum Steinsteypufélagsins
I ár er að vera sýnilegra. Var því ráðist
í að endurnýja heimasíðu félagsins
en hún var komin talsvert til ára sinna.
Lén félagsins er steinsteypufelag.is.
Stefnt er að reglulegum uppfærslum úr
steinsteypuheiminum á nýju síðunni og
eru allar ábendingar um efni velkomnar
á tölvupóstfang Steinsteypufélagsins,
steinsteypufelag@steinsteypufelag.
is. Félagið hefur einnig hafist handa
við að uppfæra póstlista félagsins. Vill
stjórn hvetja sem flesta til að fara inn
á heimasíðu félagsins þar sem hægt
er að skrá sig á póstlistann beint á
forsíðunni, einnig er hægt að skrá sig
í Steinsteypufélagið á heimasíðunni.
Að auki er Steinsteypufélag íslands nú
einnig komið á Facebook. Þar eru sett
inn skilaboð og hægt er að fylgjast með
nýjustu fréttum félagsins. Við hvetjum
alla sem eru á Facebook til að líka
við nýju síðuna okkar: facebook.com/
steinsteypufelag. Með þessu vonum við
í Steinsteypufélagi íslands að aukning
verði á almennum áhuga á steinsteypu
sem og að gæði steinsteypu verði
ávallt I hávegum höfð allra þeirra sem
meðhöndla steypu.
...upp í vindinn I 73