Læknablaðið - 01.04.2023, Blaðsíða 9
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 177
R I T S T J Ó R N A R G R E I N
Orlofssjóður lækna – öflugt starf
Orlofssjóður lækna (OSL) var settur á laggirn-
ar á áttunda áratug síðustu aldar. Fyrstu húsin
voru byggð rétt fyrir 1980. OSL byggir afkomu
sína á tveimur meginstoðum. Í fyrsta lagi 0,25%
framlagi vinnuveitanda af fullum launum þeirra
lækna sem kjarasamningur milli fjármálaráðherra
fyrir hönd ríkissjóðs annars vegar og Lækna-
félags Íslands hins vegar tekur til. Algengur
misskilningur er að framlagið sé dregið af laun-
um viðkomandi, svo er ekki. Sjálfstætt starfandi
læknar geta viðhaldið og aukið punktaeign sína
með greiðslu í OSL. Leigutekjur húseigna eru
svo hinn tekjustofninn. Tekjur OSL eru umtals-
verðar og sem dæmi voru þær á árinu 2021 tæpar
76 milljónir. Rekstrargjöld eru einnig veruleg
og voru sama ár rúmar 50 milljónir. Þá er ekki
talinn til sá kostnaður sem hlýst af kaupum og
byggingu nýrra eigna. Mismunur milli tekna og
útgjalda nýtist til nýrra framkvæmda.
Í reglugerð um OSL segir: „Sjóðnum skal varið
til þjónustu við félagsmenn í orlofi. Sjóðurinn á
og rekur orlofshúsnæði og skapar á annan hátt
aðstöðu til orlofsdvalar sjóðfélaga.“ Stefna núver-
andi stjórnar OSL hefur ætíð verið að efla starf
hans innanlands og bjóða þar upp á sífellt fleiri
valkosti og láta útrás erlendis vera. Með þessu
móti hefur hagur hans vænkast mjög og tekist að
fjölga umtalsvert valkostum. Meirihluti þeirra er í
okkar eigu en við höfum valið blandaða leið eigu-
og leigukosta. Leigukostir eru hagstæðir þar sem
ekki næst heilsársnýting húsa. Með því fjölgar
valkostum yfir sumarmánuðina þegar aðsóknin
er mest. Fyrir sumarið 2023 eru 16 valkostir í boði,
12 þeirra í eigu OSL en leigukostir eru fjórir. Að-
sókn er mikil allt árið og nýting góð, en þó sýnu
mest yfir páska og sumarmánuðina. Punktakerfi
er notað yfir páska og sumarvikurnar 13 og þar
fá þeir sem eiga flesta punkta ákveðinn forgang
en hinar 39 vikur ársins hafa allir jafnan aðgang.
Sífellt þarf að huga að viðhaldi húsa og fjölg-
un eigukosta OSL. Nýlega var húsið í Vaðnesi
tekið í gegn að utan sem innan. Kostnaðarsamt
bakslag varð þegar Höfðabrekka við Hreðavatn,
sem byggð var 2003, var dæmd það illa farin að
viðgerð borgaði sig ekki. Það hús var því rifið og
doi 10.17992/lbl.2023.04.737
Fyrir sumarið 2023 eru 16 valkostir
í boði, 12 þeirra í eigu OSL en
leigukostir eru fjórir. Aðsókn er
mikil allt árið og nýting góð, mest
yfir páska og sumarmánuðina. Þá er
punktakerfi notað og þar fá þeir sem
eiga flesta punkta ákveðinn forgang
en hinar 39 vikur ársins hafa allir
jafnan aðgang.
Icelandic Doctors’ Vacation
Fund - Powerful Function
Jörundur Kristinsson
MD
Specialist in General Practice
Primary Health Care of The
Capital Area, Iceland
Chairman of The Icelandic
Doctors´ Vacation Fund
Jörundur Kristinsson
heimilislæknir og formaður
Orlofssjóðs lækna
byggt nýtt glæsilegt hús, Höfðabrekka hin nýrri.
Það var tekið í notkun sumarið 2021, er flagg-
skip sjóðsins, ríflega 140 m2 með fjórum góðum
svefnherbergjum í tveimur álmum með tveimur
fullbúnum baðherbergjum. Önnur álman er sér-
hönnuð að þörfum hreyfihamlaðra. Jafnframt er
þar frábær eldhúsaðstaða, rúmgóð stofa, heitur
pottur og pallar við húsið. Nú höfum við náð að
safna í sarpinn og hafin er gagnger endursmíði
á eldra húsinu við Hreðavatn, Höfða, sem er að
stofninum til frá því um 1959. Stórum hluta þess
verks verður lokið fyrir sumarið en seinni áfangi
þess bíður fram á næsta vor. Á Akureyri eigum
við tvær nýlegar íbúðir í Naustahverfi,
sunnarlega í bænum. Við erum nú á
höttunum eftir húsi til kaupa í Hálönd-
um í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar. Fleiri
sækjast þar eftir húsi en fást. Ef það
tekst verður það örugglega vinsæll
áningarstaður skíðaþyrstra lækna og
fjölskyldna þeirra.
Nú er unnið að því að koma örugg-
um hleðslutengingum fyrir rafbíla við
sumarhúsin, ekki hleðslustöðvum,
heldur sérhönnuðum bílahleðslutengl-
um með nægri rýmd fyrir hleðslu.
Nokkur brögð hafa verið að því að gest-
ir hafi leitt framlengingarsnúrur inn
um dyr og glugga og stungið í samband í tengla
innanhúss í þeim tilgangi að hlaða rafbíla. Það
er hættulegur leikur. Venjulegir hústenglar eru
engan veginn ætlaðir til hleðslu rafbíla og skapar
slíkt mikla hættu.
Umgengni er því miður alloft ábótavant. Hús-
um/íbúðum skal skila þrifnum fyrir næsta leigj-
anda. Margir hafa óskað eftir að geta keypt brott-
fararþrif. Það höfum við kannað en því miður
ekki gengið eftir því afar erfitt er að fá aðila til að
sinna slíkum þrifum. Gestum ber að skila húsum/
íbúðum í því horfi sem þeir vilja koma að þeim
sjálfir. Stórhreingerning er gerð vor og haust.
Að lokum vil ég hvetja sjóðfélaga til að nýta
sér OSL, kíkja inn á bókunarkerfi hans, Frímann,
og skoða hvað er í boði. Síðasti dagur umsókna
um sumarúthlutun í ár er 16. apríl næstkomandi.