Læknablaðið - 01.04.2023, Blaðsíða 47
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 215
meðal þjóða með lágan barnadauða
og mikið langlífi. Enginn hafði skotið
sér undan að róa að borði með börnin
í bólusetningu. Fólk var samhuga um
að hugsa vel um börnin sín. En ég átti
einnig eftir að sjá hvernig samfélagið
hugsaði um sameiginlega velferð og eins
þá sem þurftu stuðning.
Það gekk slæm pest með niðurgangi
og uppköstum á Ísafirði. Sumir urðu illa
veikir. En ég tók eftir því að það urðu
engir veikir í Súðavík eða nágrannasveit-
um. Gat vatnið á Ísafirði verið mengað?
Ég kynnti mér vatnsbólið en það safnaði
yfirborðsvatni sem rann niður hlíðarnar
fyrir ofan bæinn. Þar var ekkert að sjá
athugavert en þarna var þó sauðfé út um
grænar grundir eins og gengur og gerist.
Stuttu síðar var mér gengið að kvöldi til
niður að höfn. Fjöllin spegluðust í firðin-
um en í huga mér var ungbarn sem ég
hafði áhyggjur af. Ég hafði sagt foreldr-
unum að það sakaði ekki að sjóða allt
neysluvatn. Og þarna við bryggjuna var
hið glæsilega þýska seglskip og skóla-
skip Gorch Foch að taka vatn um borð.
Í bakgrunninum var fiskvinnslan. Það
var kominn tími til að láta reyna á hvort
grunur minn um vatnið reyndist réttur.
Ef svo, þá væri það erfitt mál. Nokkrum
dögum síðar fékk ég hringingu frá
Reykjavík. Vatnið reyndist mjög mengað
og óhæft til neyslu. Nú voru góð ráð dýr.
Áhyggjur mínar af því hvernig ég
skyldi bera mig að fuku út í veður og
vind daginn eftir þegar bæjarblaðið birti
forsíðufrétt þess efnis að allir yrðu að
sjóða neysluvatn sitt. Samfélagið tók
þetta í sínar hendur, pestin fór að dvína
og umræður fóru fljótlega af stað um
hvernig leysa skyldi úr vatnsmálum Ís-
firðinga. Já, ég varð var við meðvind frá
bæjarbúum. Þeir tóku þessu með alvöru
og um síðir leystust þessi mál farsællega.
Fljótlega varð ég þó fyrir annarri
reynslu sem varpaði öðru ljósi á sam-
hug fólksins. Í Súðavík bjó gömul kona
með slæma slímhúðarbólgu í augum og
byrjaður að myndst örvefur. Ég hafði
reynt ýmislegt og var í sambandi við
sérfræðinga og þar kom að þeir mæltu
með að hún kæmi á Landspítala í með-
ferð. Gamla konan bað um umhugsunar-
frest. Hún bjó rétt utan við þorpið og á
tilsettum tíma gekk ég til hennar. Þar
beið mín uppdekkað borð og kaffi. Hún
ræddi fyrst um daginn og veginn og var
hin kurteisasta en svo kemur hún sér
að efninu. Hún segist sjaldan hafa farið
að heiman og alltaf verið því fegnust að
koma til baka. Hún hefði aldrei komið til
Reykjavíkur og þangað muni hún ekki
fara „en í Súðavík þekki ég alla og allir
þekkja mig og hér verð ég blind.“
Ég geng hugsi niður traðirnar. Þar
var kominn gamall maður að dytta að
girðingarhliði. Hann tók mig tali og vissi
vel hvernig viðtali mínu við gömlu kon-
una hafði lokið. Sló hann því upp í glens
og með sínum vestfirska húmor talaði
hann um ellina, lífið og tilveruna og
hver endalok okkar allra yrðu. Að lokum
segir hann: „Þú gerðir þitt besta en nú
sjáum við um gömlu konuna.“
Að verða læknir á landsbyggðinni
var leiðin sem ekki var valin. Þegar litið
er um öxl 56 árum síðar og spurt hvort
valið hafi verið rétt, verður fátt um
svör. Að starfa sem sérfræðingur á stóru
sjúkrahúsi hefur verið gefandi en að
vera partur af og leggja sitt af mörkum
til minna samfélags á landsbyggðinni
gefur lífinu sérstaka ánægju og fyllingu,
sem vart verður fundin annars staðar.
En þegar öllu er á botninn hvolft skiptir
mestu máli að gamli maðurinn við hliðið
segi: „Þú gerðir þitt besta.“
Ö L D U N G A D E I L D I N
Fjaran á Súðavík árið 1966, fjallið Kofri gnæfir yfir þorpið.