Læknablaðið - 01.04.2023, Blaðsíða 20
188 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109
Y F I R L I T S G R E I N
útsetja sig fyrir ónæmisglæði. Þessi greiningarskilmerki hafa
síðan verið notuð með litlum breytingum (sjá töflu II). Sjúk-
lingur er talinn vera með ASIA-heilkennið ef hann er með tvö
af meiriháttar einkennum eða eitt meiriháttar plús tvö minni-
háttar einkenni.11 Þessi skilgreining á ASIA er vissulega nokk-
uð almenn og gæti passað við fleiri sjúkdóma, en útsetning
fyrir ónæmisglæði gerir hana sérstaka.
Einkenni ASIA-heilkennis
Nýlega hafa verið birtar samantektir á einkennum ASIA-heil-
kennis.4,12 Algengt er að einkennin byrji með þreytu sem ekki
hverfur við hvíld, minnkaðri líkamlegri og andlegri getu í
vinnu, félags- og einkalífi. Sjúklingarnir líða svefntruflanir og
minnkaða vitsmunagetu sem felur í sér minnisskerðingu, erf-
iðleika við einbeitingu, erfiðleika við að finna orð og að vera
utan við sig, sem stundum er kallað „heilaþoka“ á íslensku.
Einnig lýsa þeir liðverkjum, vöðvaverkjum, hækkuðum lík-
amshita, augn- og munnþurrki. Lýst hefur verið einkennum
sem uppfylla greiningarskilmerki vefjagigtar og jafnvel
iktsýki.4 Minnkaður vöðvakraftur eða máttleysi getur verið
þannig að sjúklingurinn getur vart farið fram úr rúmi. Rann-
sókn sýndi fram á óeðlilegt vöðvarit hjá 53% slíkra sjúklinga.13
Þurrki í augum hefur verið lýst hjá allt að 75% einstaklinga
með ASIA-heilkenni og getur valdið minnkaðri sjón ef ekki er
meðhöndlað.4 Mörg þessara einkenna koma heim og saman
við Sjögrens-sjúkdóm, en ekki fylgja alltaf sértækar mótefna-
hækkanir á anti-SSA/SSB eins og í Sjögrens-sjúkdómi.
Verkir í brjóstum, viðkvæmni og brunatilfinning á brjósta-
svæði hefur verið lýst, sem og breytingum á lögun brjósta,
ósamhverfu, þéttleika og jafnvel stærð. Lýst hefur verið stækk-
uðum og aumum eitlum í holhönd, á hálsi og í jafnvel í nárum
(70-80%).4 Einnig hefur öðrum einkennum verið lýst, meðal
annars frá hjarta og æðakerfi, svo sem yfirliðatilfinningu, jafn-
vægisleysi, hjartsláttaróreglu og stundum brjóstverkjum. Að
auki hefur verið lýst einkennum frá meltingarvegi (24%): kvið-
verkjum, breytingum á hægðum og kyngingarerfiðleikum.12
Meðal þeirra sem uppfylla greiningarskilmerki ASIA-
heilkennis koma fram húðbreytingar með bólgu hjá 20-30%
af sjúklingum. Þar er húðin aum með brunatilfinningu eða
náladofa sem talið er að geti stafað af bólgu í smátaugum
(small fibre neuropathy).14
Áberandi netmunstur í húð sést hjá 20-30% en vægara hjá
öðrum 30-40%. Stundum finnast aumir hnútar undir húðinni
og hafa rannsóknir sýnt fram á hnúðagersbólgu (migratory sil-
icon granuloma).15 Hjá 20-40% sjást óskilgreind húðútbrot, kláði
og stundum hármissir.12
Viðbragð við utanaðkomandi efni og ónæmisfræðileg áhrif silíkons
Lengi var því haldið fram að silíkon væri líffræðilega hlut-
laust og skaðlaust efni. Undanfarin ár hafa rannsóknir hins
vegar sýnt fram á að þetta er ekki að öllu leyti sannleikanum
samkvæmt og að silíkon getur haft ýmis ónæmisfræðileg
áhrif, meðal annars sem ónæmisglæðir. Í árdaga notkunar si-
líkons var því sprautað beint inn í brjóstvefinn. Fljótlega kom
í ljós að silíkonið hélst ekki á staðnum, heldur dreifði sér og
framkallaði bólguhnúðager (granulamotous inflammation), sjálfs-
ónæmisbólgur og bólguástand í líkamanum. Einnig er þekkt
að silíkon getur blætt út um órofna skel ásamt því að geta færst
frá lekum púða víðs vegar um líkamann, til lungna og jafnvel
heila.16-18 Þetta er staðfest með vefjafræðilegum greiningum.4
Viðbrögð líkamans við utanaðkomandi efni er að umlykja
það bandvef ( foreign body response). Sýnt hefur verið fram á að
ónæmiskerfið tekur þátt í slíkri bandvefsmyndun kringum
brjóstapúða. Í bandvefshimnunni sem umlykur púðann reyn-
ist vera aukinn fjöldi CD4+ T-verkfrumna og Foxp3/CD25+
stýrifrumna. Rannsóknir á þessum stýrifrumum sýna að þær
eru í öfugu hlutfalli við magn bandvefs í himnunni. Boðefni
sem mæld eru í floti eitilfruma sem finnast í örvefshimnunni
eru að mestum styrk IL-6, IL-8, IL-17 og γ-interferon sem bend-
ir til yfirgnæfandi virkni TH1 og TH17 eitilfruma.19,20 Músa-
tilraunir hafa sýnt að IL-17 framleiðslan kemur fyrst, og síðan
verður sérhæft svar CD4+ frumna en T-stýrifrumur sem eiga
að dempa bólgu virðist skorta.19 Þetta óeðlilega hlutfall Th1 og
Th17 frumna annars vegar og stýrifrumna hins vegar, getur
svo orðið til þess að sjálfsónæmissjúkdómar myndast.
Einnig hefur verið sýnt fram á að ónæmiskerfið bregst við
silíkonögnum í líkamanum með áti átfrumna (macrophaga) í ná-
lægð við ígræddan snigil (cochlea) í innra eyra, sem mögulega
getur skýrt að snigillinn skemmist.6
Í nýlegu yfirliti yfir möguleg áhrif silíkonagna á ónæmis-
kerfið er sýnt hvernig silíkon er háð lífefna- og lífeðlisfræði-
legum eiginleikum, sem og tegundum frumna sem bregðast
við.21,22 Viðbrögð ónæmiskerfisins við silíkonögnum eru að át-
frumur taka upp agnirnar, og silkionið lokast inni í leysikorn-
um (lysosomes) átfrumunnar (mynd 1). Átfruman ræsir í
þessum tilfellum ósértækt bólgusvar (innate immune response)
sem myndar bólguumhverfi. Það leiðir svo til framleiðslu
frumuboða (cytokines), svo sem interleukin 1β, auk þess sem
fram koma hvarfgjörn súrefnissambönd) og hvarfgjörn nitur-
sambönd. Þetta leiðir til sjálfstýrðs frumudauða átfrumunnar
(apoptosis) sem þá rofnar. Það veldur því að silíkonögnin losnar
út í umhverfið og er tekin upp af annarri átfrumu. Útsetning
fyrir silíkonögnum leiðir að auki til umfangsmikillar myndun-
ar á IL-17 sem veldur svo innflæði daufkyrninga (neutrophils)
sem ræsast og mynda hvarfgjörn súrefnissambönd og losa
efni, svo sem myeloperoxidasa. Til viðbótar eru silíkonagnirn-
ar fluttar með átfrumum til staðbundinna eitla, þar sem þær
geta valdið enn frekari örvun ósérhæfðs ónæmissvars.
Dýrarannsóknir hafa sýnt fram á að ef dýrin eru með vissa
áhættuarfgerð, geti silíkon valdið þróun á sjálfsónæmissjúk-
dómi eða versnun hans.23 Að auki hefur verið fram sýnt fram
á að konur sem eru með ofnæmissjúkdóm eða sjálfsónæm-
issjúkdóm eru líklegri til að þróa með sér ASIA-heilkenni
eftir silíkonpúðaísetningu, sem og konur sem eru með sterka
fjölskyldusögu um sjálfsónæmissjúkdóma.24 Einnig er líklegt
að umhverfisþættir, svo sem reykingar og offita, geti verið
hvetjandi þættir.25,26
Margir sjúklingar með ASIA-heilkenni hafa verið greindir
með vissa ónæmisgalla eða D-vítamínskort, en þessir tveir
þættir geta ýtt undir myndun sjálfsónæmis. Talið er að krónísk