Læknablaðið - 01.04.2023, Blaðsíða 53
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 221
Af hverju vildir þú verða læknir?
Ég hafði áhuga á líffræði og mannslíkamanum í gegnum
skólagönguna. Eftir menntaskóla lá beinast við að þreyta inn-
tökuprófið án þess að mér hafi fundist það vera stór ákvörðun
þá. Fyrstu árin fannst mér ekkert svakalega gaman fyrir utan
einstaka fög en þegar klínísku árin komu fannst mér þetta
smella og ákvörðunin vera rétt.
Hversu erfitt er að verða doktor á skalanum 1-10?
Fyrir mig reyndi þetta mikið á, sérstaklega lokahnykkurinn
þar sem ég var kominn djúpt í sérnám í allt öðru fagi (7/10).
Hvað yrði þitt fyrsta verk sem heilbrigðisráðherra?
Ég held það séu fá störf jafn erfið og að vera heilbrigðisráð-
herra. Heilbrigðiskerfið er svo margslungið og margt sem
þarf að huga að. Þó ég hafi ekki unnið á Íslandi í 5 ár virðist
uppsafnaður vandi með skort á leguplássum hrjá Land-
spítala. Ég myndi þess vegna reyna að gera allt til þess að
auka fjölda leguplássa og flæði sjúklinga yfir á aðrar stofn-
anir en Landspítala eftir að meðferð þar er lokið. Einnig er
nauðsynlegt að hafa gott samstarf milli sjálfstætt starfandi
sérfræðinga og Landspítalan.
Hvaða bók, þættir, músík, líkamsrækt er best?
Af þeim bókum sem ég hef lesið á síðustu árum er Hyperion
sú eftirminnilegasta, ég er hrifinn af vísindaskáldsögum.
Seinfeld eru alltaf bestu þættirnir, Curb Your Enthusiuasm í
öðru sæti.
Ég hlusta mest á Mac De Marco og Unknown Mortal
Orchestra undanfarið.
Eina líkamsræktin sem ég hef tíma fyrir undanfarið er að
hlaupa, þó mér finnist það ekki endilega það skemmtilegasta
eða besta. Myndi heldur kjósa golf eða fótbolta ef ég hefði
tíma.“
Hvað er skemmtilegast að gera þegar þú ert ekki í vinnunni?
Hreyfa mig, eyða tíma með strákunum mínum og horfa
á góða mynd eða þáttaröð. Það er því miður ekki meira
spennandi en það! Hart rútínulíf þegar maður á tvö börn und-
ir 5 ára aldri og bæði ég og sambýliskona mín í fullri vinnu.
Doktorsvörn frá Háskóla Íslands:
Tómas Andri Axelsson
Hvað segir nýdoktorinn?
Tómas Andri Axelsson varði doktorsritgerð sína í læknavís-
indum við læknadeild Háskóla Íslands 17. mars 2023. Ritgerðin
heitir: Árangur eftir kransæðahjáveituaðgerðir.
Andmælendur voru Ivy Modrau, dósent og hjartaskurðlækn-
ir við Háskólasjúkrahúsið í Árósum, og Katrín Ragna Kemp
Guðmundsdóttir, hjartalæknir á Landspítala og á Hjartamið-
stöðinni. Umsjónarkennari og leiðbeinandi var Tómas Guð-
bjartsson, prófessor, og auk hans sátu í doktorsnefnd Arnar
Geirsson, prófessor við Yale, Karl Andersen og Sigurbergur
Kárason, prófessorar við læknadeild Háskóla Íslands.
Úr ágripinu
Kransæðasjúkdómur er algengasta dánarorsök í heimi.
Meðal alvarlegra fylgikvilla sjúkdómsins eru drep í hjarta-
vöðva, hjartabilun, alvarlegar hjartsláttartruflanir og skyndi-
dauði. Kransæðahjáveituaðgerð er talin besta meðferð við
dreifðum kransæðasjúkdómi eða þrengslum í vinstri höfuð-
stofni. Doktorsverkefnið byggist á fjórum vísindagreinum sem
lýsa rannsóknum sem höfðu það markmið að kanna árangur af
kransæðahjáveituaðgerðum og afdrif skilgreindra undirhópa
sjúklinga sem gangast undir slíkar aðgerðir.
Doktorinn
Tómas Andri er stúdent frá náttúrufræðibraut MR 2008 og
lauk embættisprófi frá læknadeild HÍ 2014. Hann leggur
stund á þvagfæraskurðlækningar á Danderyd-sjúkrahúsinu í
Stokkhólmi.
Tómas Axel í anddyri Háskóla Íslands daginn sem hann varði doktorsritgerð sína.
Mynd/Gunnar Sverrisson