Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.04.2023, Page 53

Læknablaðið - 01.04.2023, Page 53
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 221 Af hverju vildir þú verða læknir? Ég hafði áhuga á líffræði og mannslíkamanum í gegnum skólagönguna. Eftir menntaskóla lá beinast við að þreyta inn- tökuprófið án þess að mér hafi fundist það vera stór ákvörðun þá. Fyrstu árin fannst mér ekkert svakalega gaman fyrir utan einstaka fög en þegar klínísku árin komu fannst mér þetta smella og ákvörðunin vera rétt. Hversu erfitt er að verða doktor á skalanum 1-10? Fyrir mig reyndi þetta mikið á, sérstaklega lokahnykkurinn þar sem ég var kominn djúpt í sérnám í allt öðru fagi (7/10). Hvað yrði þitt fyrsta verk sem heilbrigðisráðherra? Ég held það séu fá störf jafn erfið og að vera heilbrigðisráð- herra. Heilbrigðiskerfið er svo margslungið og margt sem þarf að huga að. Þó ég hafi ekki unnið á Íslandi í 5 ár virðist uppsafnaður vandi með skort á leguplássum hrjá Land- spítala. Ég myndi þess vegna reyna að gera allt til þess að auka fjölda leguplássa og flæði sjúklinga yfir á aðrar stofn- anir en Landspítala eftir að meðferð þar er lokið. Einnig er nauðsynlegt að hafa gott samstarf milli sjálfstætt starfandi sérfræðinga og Landspítalan. Hvaða bók, þættir, músík, líkamsrækt er best? Af þeim bókum sem ég hef lesið á síðustu árum er Hyperion sú eftirminnilegasta, ég er hrifinn af vísindaskáldsögum. Seinfeld eru alltaf bestu þættirnir, Curb Your Enthusiuasm í öðru sæti. Ég hlusta mest á Mac De Marco og Unknown Mortal Orchestra undanfarið. Eina líkamsræktin sem ég hef tíma fyrir undanfarið er að hlaupa, þó mér finnist það ekki endilega það skemmtilegasta eða besta. Myndi heldur kjósa golf eða fótbolta ef ég hefði tíma.“ Hvað er skemmtilegast að gera þegar þú ert ekki í vinnunni? Hreyfa mig, eyða tíma með strákunum mínum og horfa á góða mynd eða þáttaröð. Það er því miður ekki meira spennandi en það! Hart rútínulíf þegar maður á tvö börn und- ir 5 ára aldri og bæði ég og sambýliskona mín í fullri vinnu. Doktorsvörn frá Háskóla Íslands: Tómas Andri Axelsson Hvað segir nýdoktorinn? Tómas Andri Axelsson varði doktorsritgerð sína í læknavís- indum við læknadeild Háskóla Íslands 17. mars 2023. Ritgerðin heitir: Árangur eftir kransæðahjáveituaðgerðir. Andmælendur voru Ivy Modrau, dósent og hjartaskurðlækn- ir við Háskólasjúkrahúsið í Árósum, og Katrín Ragna Kemp Guðmundsdóttir, hjartalæknir á Landspítala og á Hjartamið- stöðinni. Umsjónarkennari og leiðbeinandi var Tómas Guð- bjartsson, prófessor, og auk hans sátu í doktorsnefnd Arnar Geirsson, prófessor við Yale, Karl Andersen og Sigurbergur Kárason, prófessorar við læknadeild Háskóla Íslands. Úr ágripinu Kransæðasjúkdómur er algengasta dánarorsök í heimi. Meðal alvarlegra fylgikvilla sjúkdómsins eru drep í hjarta- vöðva, hjartabilun, alvarlegar hjartsláttartruflanir og skyndi- dauði. Kransæðahjáveituaðgerð er talin besta meðferð við dreifðum kransæðasjúkdómi eða þrengslum í vinstri höfuð- stofni. Doktorsverkefnið byggist á fjórum vísindagreinum sem lýsa rannsóknum sem höfðu það markmið að kanna árangur af kransæðahjáveituaðgerðum og afdrif skilgreindra undirhópa sjúklinga sem gangast undir slíkar aðgerðir. Doktorinn Tómas Andri er stúdent frá náttúrufræðibraut MR 2008 og lauk embættisprófi frá læknadeild HÍ 2014. Hann leggur stund á þvagfæraskurðlækningar á Danderyd-sjúkrahúsinu í Stokkhólmi. Tómas Axel í anddyri Háskóla Íslands daginn sem hann varði doktorsritgerð sína. Mynd/Gunnar Sverrisson

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.