Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.2023, Blaðsíða 43

Læknablaðið - 01.04.2023, Blaðsíða 43
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 211 hafa opnað nýja sýn, glætt skilning, hreyft við tilfinningum, eða verið svo spennandi, vel stílaðar eða áhugaverðar að erfitt var að leggja þær frá sér. Sumar fundust mér ekki eins góðar þegar ég las þær aftur síðar, en þær bestu voru marglaga og maður sá glitta í nýja þræði við hvern lestur. Ég lifi um ævi Martin Gray var lík- lega áhrifamesta bókin sem ég las á bernskuárunum. Hún lýsir grimmd og ómennsku í seinni heimsstyrjöldinni, en einnig mögnuðum viljastyrk. Sjálfstætt fólk var önnur bók sem ég varð gagn- tekinn af, raunar svo mjög að ég man enn eftir því flæði innlifunar sem fylgdi fyrsta lestri hennar. Ellefu sumur í sveit á bernskuárum hafa þar sjálfsagt haft sitt að segja. Ég var raunar bókstaflega hátt uppi við lesturinn milli hífinga uppi í byggingarkrana 18 ára gamall, nýkom- inn með réttindi sem kranamaður. Sjálf- stætt fólk las ég næst 35 ára, þá nýorðinn sérfræðingur í geðlækningum, og í þriðja sinn fimmtugur, árið 2014. Mér finnst nóbelskáldinu ótvírætt hafa tekist sá galdur sem Natasha S. lýsir að ofan. Sjálfstætt fólk er því mest uppáhalds. Þar glitti í dýpri skilning á mannlegum örlögum með auknum þroska við hvorn endurlestur. Af bókmenntum seinni ára hefur veröld skáldskaparins náð mestum tök- um á mér hjá Jóni Kalman og Hallgrími Helgasyni. Lestur bóka eins og Sumarljós og svo kemur nóttin og Konan við 1000 gráður var sannkallaður unaðslestur. Erfðir og uppeldi ráða mestu um hvernig maður er og verður, en svo lengi lærir sem lifir, segir máltækið. Bóklestur hefur mótað skilning minn á heiminum frá unga aldri og einnig verið forsenda þess náms sem ég hef lokið. Vissulega sogast maður oftar djúpt inn í heim bókanna framan af ævi en þegar líða tekur á lífshlaupið. Ljóð eiga jafnan greiðasta leið að tilfinningum okkar. Þar er róið á enn dýpri mið í tjáningu tilfinninga og reynslu en í skáldsögum. Nýlega las ég verðlaunabókina Máltaka á stríðstímum. Það er lítið kver um þungbær mál. Hin rússneska Natasha S. yrkir þar: Galdur orðin eru galdur leiða í óvissa átt breyta huganum sjónarhorni sjálfsmynd lífi til að galdurinn virki þarf að orða hlutina af nákvæmni svo hægt sé að rjúfa álögin setja punkt á bakvið þetta allt Þessi orð hennar komu upp í hugann þegar ég var beðinn um að skrifa um uppáhaldsbókina mína nú þegar ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Eftirminnilegustu bækurnar Hvaða bók hefur fylgt þér lengst, þú hefur lesið oftast eða haft mest áhrif á þig? Engilbert Sigurðsson geðlæknir og fyrrum ritstjóri og ábyrgðarmaður Læknablaðsins Ég skora á Önnu Kristínu Gunnarsdóttur að rifja upp sína uppáhaldsbók og segja lesendum frá henni. Marglaga orðagaldur sem dýpkar með auknum þroska við hvern lestur Karitas án titils eftir Kristínu Mörju Baldursdóttur er einstaklega myndræn bók sem gleymist ekki. Suðuramerískt töfraraunsæi hef- ur jafnan höfðað til mín, ekki síst bækur Gabriels Garcia Marquez og Isabel Allende, til dæmis Ástin á tímum kólerunnar, Hundrað ára einsemd og Hús andanna. Þær fræðibækur sem hafa hreyft mest við rökhugsun minni og sýn á samfélög manna, lýðheilsu og hvernig við læknar getum unnið að bættri heilsu og betri heimi eru The Strategy of Preventive Med- icine eftir Geoffrey Rose, Thinking Fast and Slow eftir Daniel Kahneman, Sapiens eftir Yuval Noah Harari og Factfulness eftir Hans Rosling. Lj ós m yn d/ Vi lh el m G un na rs so n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.