Læknablaðið - 01.04.2023, Page 43
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 211
hafa opnað nýja sýn, glætt skilning,
hreyft við tilfinningum, eða verið svo
spennandi, vel stílaðar eða áhugaverðar
að erfitt var að leggja þær frá sér. Sumar
fundust mér ekki eins góðar þegar ég
las þær aftur síðar, en þær bestu voru
marglaga og maður sá glitta í nýja þræði
við hvern lestur.
Ég lifi um ævi Martin Gray var lík-
lega áhrifamesta bókin sem ég las á
bernskuárunum. Hún lýsir grimmd og
ómennsku í seinni heimsstyrjöldinni, en
einnig mögnuðum viljastyrk. Sjálfstætt
fólk var önnur bók sem ég varð gagn-
tekinn af, raunar svo mjög að ég man
enn eftir því flæði innlifunar sem fylgdi
fyrsta lestri hennar. Ellefu sumur í sveit
á bernskuárum hafa þar sjálfsagt haft
sitt að segja. Ég var raunar bókstaflega
hátt uppi við lesturinn milli hífinga uppi
í byggingarkrana 18 ára gamall, nýkom-
inn með réttindi sem kranamaður. Sjálf-
stætt fólk las ég næst 35 ára, þá nýorðinn
sérfræðingur í geðlækningum, og í
þriðja sinn fimmtugur, árið 2014. Mér
finnst nóbelskáldinu ótvírætt hafa tekist
sá galdur sem Natasha S. lýsir að ofan.
Sjálfstætt fólk er því mest uppáhalds.
Þar glitti í dýpri skilning á mannlegum
örlögum með auknum þroska við hvorn
endurlestur.
Af bókmenntum seinni ára hefur
veröld skáldskaparins náð mestum tök-
um á mér hjá Jóni Kalman og Hallgrími
Helgasyni. Lestur bóka eins og Sumarljós
og svo kemur nóttin og Konan við 1000
gráður var sannkallaður unaðslestur.
Erfðir og uppeldi ráða mestu um hvernig
maður er og verður, en svo lengi lærir
sem lifir, segir máltækið. Bóklestur hefur
mótað skilning minn á heiminum frá
unga aldri og einnig verið forsenda þess
náms sem ég hef lokið. Vissulega sogast
maður oftar djúpt inn í heim bókanna
framan af ævi en þegar líða tekur á
lífshlaupið. Ljóð eiga jafnan greiðasta
leið að tilfinningum okkar. Þar er róið á
enn dýpri mið í tjáningu tilfinninga og
reynslu en í skáldsögum. Nýlega las ég
verðlaunabókina Máltaka á stríðstímum.
Það er lítið kver um þungbær mál. Hin
rússneska Natasha S. yrkir þar:
Galdur
orðin eru galdur
leiða í óvissa átt
breyta huganum
sjónarhorni
sjálfsmynd
lífi
til að galdurinn virki
þarf að orða hlutina
af nákvæmni
svo hægt sé
að rjúfa álögin
setja punkt
á bakvið þetta allt
Þessi orð hennar komu upp í hugann
þegar ég var beðinn um að skrifa um
uppáhaldsbókina mína nú þegar ár er
liðið frá innrás Rússa í Úkraínu.
Eftirminnilegustu bækurnar
Hvaða bók hefur fylgt þér lengst,
þú hefur lesið oftast eða haft mest áhrif á þig?
Engilbert Sigurðsson
geðlæknir og fyrrum ritstjóri og
ábyrgðarmaður Læknablaðsins
Ég skora á Önnu Kristínu Gunnarsdóttur að rifja upp
sína uppáhaldsbók og segja lesendum frá henni.
Marglaga orðagaldur sem dýpkar með
auknum þroska við hvern lestur
Karitas án titils eftir Kristínu Mörju
Baldursdóttur er einstaklega myndræn
bók sem gleymist ekki.
Suðuramerískt töfraraunsæi hef-
ur jafnan höfðað til mín, ekki síst
bækur Gabriels Garcia Marquez og
Isabel Allende, til dæmis Ástin á tímum
kólerunnar, Hundrað ára einsemd og Hús
andanna.
Þær fræðibækur sem hafa hreyft mest
við rökhugsun minni og sýn á samfélög
manna, lýðheilsu og hvernig við læknar
getum unnið að bættri heilsu og betri
heimi eru The Strategy of Preventive Med-
icine eftir Geoffrey Rose, Thinking Fast
and Slow eftir Daniel Kahneman, Sapiens
eftir Yuval Noah Harari og Factfulness
eftir Hans Rosling.
Lj
ós
m
yn
d/
Vi
lh
el
m
G
un
na
rs
so
n