Læknablaðið - 01.04.2023, Blaðsíða 31
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 199
Læknafélag Reykjavíkur á sér langa og
merkilega sögu. Félagið var stofnað 18.
október 1909 gagngert til að gera samn-
inga við nýstofnað Sjúkrasamlag Reykja-
víkur, gæta hagsmuna lækna, sjá um
samskipti við sjúkrasamlagið og semja
um gjaldskrá fyrir félagsmenn. Það kom
að stofnun Læknablaðsins og seinna að
stofnun Læknafélags Íslands. Nú sem
endranær hefur aðgengi sjúklinga að
viðeigandi heilbrigðisþjónustu verið fé-
lagsmönnum sérstakt stefnumál.
Ég þreytist seint á að segja frá starfi
sérgreinalækna á stofu – en það er mjög
umfangsmikið og spannar flest svið
læknisfræðinnar. Árið 2021 leituðu Ís-
lendingar að meðaltali 1,4 sinnum til
sérgreinalækna – samtals 510.000 sinn-
um. Það eru fleiri komur en til lækna á
heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og
til lækna á göngudeildum Landspítala
samanlagt. Afköstin eru mikil, en hver
stofulæknir sinnir meira en 1280 læknis-
verkum árlega. Þjónustan er samfélaginu
sérstaklega hagkvæm – kostnaður við
læknisheimsókn hjá sérgreinalækni á
stofu er brot af því sem það kostar að
leysa sama vandamál á göngudeild
á sjúkrahúsi. Í því ljósi er ótrúlegt að
hugsa til þess að sérgreinalæknar hafa
verið án samnings við ríkið í meira en
fjögur ár og þrjá mánuði!
Hvað er að vera sjúkratryggður á Íslandi?
Víða er þrengt að heilbrigðisþjónustu á
landinu og ljóst að eftirspurn er langtum
meiri en framboð. Það sést á löngum
biðtímum eftir viðtali hjá heimilislækni,
bið eftir mati sérgreinalækna, bið á
bráðamóttöku, eftir innlögn og aðgerð-
um, endurhæfingu, hjúkrunarrýmum og
heimahjúkrun og hér mætti lengi telja.
Ljóst er að vandinn mun vaxa með fjölg-
un þjóðarinnar og öldrun hennar.
Hið opinbera hefur endurtekið sagt
að vandamálið sé í raun einfalt – þetta sé
bara spurning um verð og magn.
Fram til þessa hefur gengið brösug-
lega að ná saman um verð en kannski
Ú R P E N N A S T J Ó R N A R M A N N A L Í
Í pistlunum Úr penna stjórnarmanna LÍ birta þeir eigin
skoðanir en ekki félagsins.
Ragnar Freyr Ingvarsson
formaður Læknafélags Reykjavíkur, gigtarlæknir
hjá Gigtarmiðstöðinni og lyflæknir á Landspítala
enn síður um magn. Hversu margar
heimsóknir vill ríkið kaupa? Hversu
margar ristilspeglanir? Hversu mörgum
börnum á að sinna hjá barnalæknaþjón-
ustunni? Hversu mörg geðviðtöl? Eða
ofnæmispróf?
Hið opinbera verður að ákveða hvaða
réttindi eiga að teljast til almanna-
trygginga og hvað eigi að standa fyrir
utan. Þetta eru krefjandi viðfangsefni
sem stjórnmálamenn og embættismenn
verða að reyna að leysa. Hvað þýðir það
að vera sjúkratryggður á Íslandi?
Hvað vilja sérgreinalæknar?
Tryggja þarf nýliðun sérgreinalækna svo
sjúklingar geti komist að innan nokkurra
vikna frá því að tilvísun berst. Sam-
kvæmt skilgreiningu landlæknis frá 2016
er ásættanleg bið innan við 30 dagar.
Ljóst er að þeim markmiðum hefur ekki
verið náð en víða er meira en þriggja
mánaða bið og jafnvel miklu lengri.
Samkvæmt bráðabirgðatölum frá Sjúkra-
tryggingum Íslands virðist þjónusta
sérgreinalækna hafa dregist saman um
4,7% árið 2022 borið saman við árið á
undan. Staðan er grafalvarleg og ljóst að
blása þarf til sóknar ef tryggja á eðlilegt
aðgengi að sérgreinalæknum.
Nýjungar þarf að innleiða með skyn-
samlegum og skjótum hætti. Það leiðir
til betri niðurstöðu fyrir sjúklinga. Vilji
til að taka upp nýjar meðferðir, nýjungar
við greiningu og meðferð sjúklinga
þurfa að eiga greiða leið inn í gjaldskrá
sjálfstætt starfandi lækna en hún hefur
tekið sárafáum breytingum á liðnum
áratug. Það hefur ekki staðið á læknum
að vilja innleiða nýja þekkingu sjúkling-
um til hagsbóta.
Leiðrétta þarf verð til lækna, en það
hefur ekki verið gert í meira en þrjú ár
og hafa læknar verið nauðbeygðir til að
leiðrétta gjaldskrár sínar til að standa
undir kostnaðar- og launahækkunum. Ef
hið opinbera hefði leiðrétt verð til lækna
væru álögur á sjúklinga mun minni.
Þetta þarf að laga sem fyrst svo tryggja
megi aðgengi að mikilvægri þjónustu
sérgreinalækna, óháð efnahag. Með
samningsleysi hefur því markmiði verið
stefnt í voða.
Að lokum
Samkvæmt úttekt Öryrkjabandalags
Íslands hafði samningsleysið kostað
sjúklinga nærri tvo milljarða árið 2020.
Framreiknað til dagsins í dag má ætla að
kostnaður sjúklinga sé kominn í 10 millj-
arða frá árinu 2019, þegar samningar
runnu út. Þetta eru geysilegar fjárhæðir
sem ríkið hefði lögum samkvæmt átt að
greiða.
Síðustu ár hafa verið krefjandi fyrir
sjálfstætt starfandi lækna en fyrst og
fremst krefjandi fyrir sjúklingana. Sér-
staklega fyrir þá sem lifa á örorkubótum
eða hafa lítið á milli handanna. Úr þessu
verður að bæta sem fyrst.
Mér finnst ávallt einkennilegt til þess
að hugsa hvað þessi mikilvægu málefni
fá lítið pláss í fréttum eða í samfélags-
legum umræðum. Þess vegna skrifa ég
þennan pistil – sem er kannski keimlík-
ur fyrri skrifum mínum um þessi mál –
enda er ég með þetta á heilanum.
LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS - MAIN LOGO + 100 YEARS ANNIVERSARY LOGOFélag almennra lækna
Þórdís Þorkelsdóttir
Sólveig Bjarnadóttir
Félag íslenskra heimilislækna
Margrét Ólafía Tómasdóttir
Oddur Steinarsson
Félag sjúkrahúslækna
Theódór Skúli Sigurðsson
Magdalena Ásgeirsdóttir
Læknafélag Reykjavíkur
Ragnar Freyr Ingvarsson
Katrín Ragna Kemp
Steinunn Þórðardóttir formaður
Stjórn Læknafélags Íslands
Með stöðu sjúkratrygginga og
sérgreinalækna á heilanum