Læknablaðið - 01.04.2023, Blaðsíða 28
196 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109
F R É T T I R
Vilhjálmur sá fyrsti sem útskrifast
úr sérnámi í lyflækningum
Vilhjálmur Steingrímsson valdi að verða læknir eftir að hafa starfað í greiningardeild
Kaupþings við bankahrunið. Hann segir ekki hafa verið erfitt ákveða að setjast aftur á
skólabekk enda verið að velja starfsferil til lífstíðar
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Vilhjálmur Steingrímsson varð sá fyrsti
til að útskrifast úr 5 ára sérnámi í lyf-
lækningum hér á landi 17. mars síðast-
liðinn. Sérnámið er kennt í samstarfi við
Royal College of Physicians í Bretlandi
og hóf Vilhjálmur námið 2016. Hann
stundaði doktorsnám samhliða og varði
ritgerð sína haustið 2021.
„Hlutirnir ganga gjarnan upp þegar
maður eltir áhugann og reynir að vera
praktískur í leiðinni,“ segir Vilhjálmur
sem á sama tíma stofnaði fjölskyldu
með Kristrúnu Gunnarsdóttir hljóðverk-
fræðingi.
„Við hjónin eignuðumst fjölskyldu,
eigum tvo stráka. Svo hefur starfið hjá
konunni minni kallað á að við værum
hérna á Íslandi. Þetta er stór ástæða fyrir
því að ég kaus að stunda sérnámið hér
heima,“ segir hann og er hógvær yfir því
að útskrifast fyrstur.
„Fyrst og fremst er gaman að þetta
skuli hafa gengið eftir. Frábært að
prógrammið hafi gengið svona vel og
ég hafi getað klárað allt námið hérna
heima. Góðir vinir mínir eru að útskrif-
ast úr prógramminu næstu vikur og
mánuði. Það var ekki keppikefli að vera
fyrstur.“
Hann er ánægður með sérnámið.
„Kalt mat: Það er hrikalega gott. Ég held
að í alþjóðlegum samanburði standi það
framarlega. Þetta var stundum erfitt,
eins og sérnám í lækningum er yfirleitt,
en líka þar sem þessi rúmlega 10 manna
hópur sem var í fararbroddi og þurfti að
finna upp hjólið og takast á við áskoranir
og finna lausnir á þeim,“ segir hann og
tekur verklega PACES-prófið í Bretlandi
á þriðja ári sem dæmi.
„Það var mjög ólíkt þeim prófum sem
við höfðum farið í á námsferlinum. Það
er gaman að sjá hvernig prógrammið hér
hefur náð góðum tökum á því að undir-
búa sérnámslæknana sína fyrir prófið
sem reyndist áður stóra hindrunin þessi
fimm ár.“
Vilhjálmur útskrifaðist úr læknis-
Aðalsteinn Guðmundsson öldrunarlæknir, sem var leiðbeinandi
í náminu, Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson kennslustjóri í sérnámi
lyflækninga, Vilhjálmur Steingrímsson, Tómas Þór Ágústsson
framkvæmdastjóri lækninga og Gunnar Thorarensen yfirlæknir
sérnáms á Landspítala. Mynd/Helga Ágústa Sigurjónsdóttir.
fræði árið 2015 og skráði sig til leiks eftir
efnahagshrunið, en hafði verið stærð-
fræðingur í vinnu í greiningardeild í
Kaupþingsbanka.
„Ég var að vinna þar haustið 2008,“
segir hann og þekkt er að þá hrundu
íslensku bankarnir. „Það voru um-
brotatímar og maður þurfti að fara í
naflaskoðun og endaði ég á fara í læknis-
fræðina,“ segir hann en að hugmyndin
hafi kviknað nokkuð skyndilega.
„Ég vildi nýta stærðfræðina við rann-
sóknir tengdar heilbrigðisvísindum og
fór þá að hugsa: Af hverju ekki að fara í
læknisfræði?“ En var ekki erfitt að setj-
ast aftur á skólabekk, búinn að kynnast
föstum tekjum? „Nei, það var ekki erfið
ákvörðun miðað við að velja starfsferil
fyrir lífstíð.“
Vilhjálmur er sérfræðingur í almenn-
um lyflækningum í Fossvogi. „Nú skoða
ég hvort ég ætla að fara í undirsérgrein
og þá hvenær.“