Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.04.2023, Blaðsíða 48

Læknablaðið - 01.04.2023, Blaðsíða 48
216 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 Ólafur Jónsson Upphaf svæfinga og Eterhvelfingin í Boston S A G A L Æ K N I S F R Æ Ð I N N A R Hér verður sagt frá merkum atburði í sögu lækninganna sem átti sér stað í Boston fyrir tæpum 180 árum. Sýnt var fram á að hægt væri að gera skurðaðgerð án þess að sjúklingur fyndi sársauka. Þetta var á Massachusetts General Hospital 16. október 1846. Skurðaðgerðin var vegna æxlis í kjálka sjúklings. Svæf- ingalyfið var Diethyl Eter og var í gler- kúlu sem í var svampur, mettaður með lyfinu. Sjúklingurinn, Gilbert Abbot, andaði etergufunni að sér meðan á að- gerðinni stóð og virtist sofandi. Þegar aðgerðinni lauk og hann hafði rankað við sér sagðist hann ekki hafa fundið sársauka. Skurðlæknirinn John Collins Warren, sem var forseti læknadeildar Harvard-háskóla, sagði þá fræg orð: „Gentlemen, this is no humbug.” Sá sem annaðist svæfinguna hét William T. Morton og var tannlæknir. Á legstein á gröf hans stendur: „Inventor and revealer of inhalation anaesthesia. Before whom, in all time, surgery was agony. By whom pain in surgery was averted and annullet. Since whom, science has control of pain.“ Fréttin af þessum at- burði barst fljótt til Evrópu og víðar þar sem aðferðin var tekin upp. Nýir tímar í sögu lækninganna voru hafnir. Fyrir tíma svæfinganna var staða skurðlækna og sjúklinga erfið vegna þess að nær engin úrræði voru til þess að stilla sársauka við skurðaðgerðir. Mikil áhersla var á mikinn hraða við aðgerðir, svo sem aflimanir, vegna geysilegs sársauka sjúklinga. Vegna þess munu skurðstofur hafa verið hafðar nokkuð afsíðis svo síður heyrðust sárs- auka- og örvæntingarvein sjúklinganna. Ether Dome og múmían Padihershef. Gömul mynd/ljósmyndarinn óþekktur. Höfundur var á sínum tíma við sérfræðinám á Massachusetts General Hospital í Boston. Síðar svæfingalæknir á Borgarspítalanum í 33 ár. Skurðstofan þar sem þetta gerðist var í elstu byggingu spítalans. Hann var stofnaður árið 1811 og var sá fyrsti í Nýja-Englandi. Þessi bygging stendur enn og mun í fullri notkun. Hún ber nafn arkitektsins, Charles Bulfinch. Efst í byggingunni fyrir miðju undir veglegu hvolfþaki var skurðstofan sem síðar fékk nafnið Ether Dome. Þessi skurðstofa var í notkun til 1867. Síðan var hún notuð sem geymsla, svefn- skáli og síðar matstofa hjúkrunarkvenna. Frá árinu 1892 hefur húsnæðið verið not- að til fræðslustarfa. Þar er hátt til lofts og upphækkaðar sætaraðir í tæpan hálf- hring og nútímatækni til staðar. Nálægt 150 ára afmæli atburðarins var ákveðið að minnast þessa með við- eigandi hætti. Nokkrir læknar tóku sig saman og fengu til liðs við sig listmálara, myndatökumenn og förðunarmeistara. Í leikhúsi fengu þeir búninga tíðarandans. Settu svo atburðinn á svið. Afraksturinn var málverk sem nú er á áberandi stað í Ether Dome. Til gamans má geta þess að árið 1823 var spítalanum gefin múmía frá Egypta- landi. Hún hefur áratugum saman verið geymd í Ether Dome og verið rannsökuð ítarlega, síðari árin með nútímatækni. Árið 1960 gat fræðimaður lesið mynd- letur (hýeróglífur) í kistunni. Múmían var af karlmanni sem uppi var í borginni Þebu um 600 f. Kr. á tímum 26. konung- sættar. Hann hét Padihershef og starfaði sem leitarmaður að heppilegum grafar- stæðum. Þá er þarna stytta af guðinum Apolló sem meðal annars var guð visku og lækninga, sbr. upphaf hins forna Hippókratesareiðs: „Ég sver við Apolló, sem læknar, Asklepíus … að ég mun framkvæma eftir kunnáttu minni og dómgreind þennan eið.” Styttan var gef- in spítalanum árið 1845. Þetta er afsteypa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.